Íslenska stúlknalandsliðið hóf leik á EM U18 í dag þegar liðið mætti Ítalíu í fyrsta leik sínum. Mótið fer fram í Lettlandi og Litháen en Ísland leikur sína leiki í Riga, höfuðborg Lettlands.
Ljóst var að frumraun liðsins á mótinu yrði afar erfið í leik gegn sterku liði Ítalíu. Ísland hélt þokkalega í við þær ítölsku framan af öllum hrinum leiksins en um miðja hrinu seig lið Ítalíu fram úr. Að lokum vann Ítalía sannfærandi 0-3 sigur en flestir leikmenn í íslenska hópnum fengu að spreyta sig strax í fyrsta leik.
Ísland 0-3 Ítalía (14-25, 11-25, 10-25). Alexandra Björg Andradóttir var stigahæst hjá Íslandi með 7 stig en Lisa Monari Gamba skoraði 14 stig fyrir Ítalíu. Leikskýrslu má finna með því að smella hér. Þar má meðal annars sjá byrjunarlið leiksins og helstu tölfræði.
Næsti leikur verður gegn heimaliði Lettlands og fer fram strax á morgun, fimmtudag. Búast má við jafnari leik þar og verður áhugavert að sjá íslensku stelpurnar spreyta sig gegn heimakonum.