Íslensku strákarnir mættu Grikklandi í European League í dag en það var fyrri leikur liðsins þessa keppnishelgi.
Eftir langt ferðalag til Grikklands var íslenska liðið mætt til Glyfada í Aþenu. Heimamenn eru með öflugri liðum keppninnar að þessu sinni og byrjuðu leik dagsins af krafti. Munurinn varð fljótt ansi mikill og Grikkir unnu fyrstu hrinuna 25-14. Önnur hrinan var mun betri og náði Ísland að sýna jafnari leik. Lokakafli hrinunnar var aftur á móti ekki eins góður og náði Grikkland í 25-13 sigur.
Heimamenn héldu áfram að þjarma að íslensku strákunum í þriðju hrinu leiksins og gáfu ekkert eftir. Þrátt fyrir góðar skorpur hjá Íslandi kláraði Grikkland leikinn með því að vinna 12-25 í þriðju hrinunni.
Ísland 0-3 Grikkland (14-25, 13-25, 12-25). Galdur Máni Davíðsson skoraði 6 stig fyrir Ísland en Þórarinn Örn Jónsson kom næstur með 5 stig. Dimitrios Mouchlias var stigahæstur hjá Grikklandi með 14 stig.