Tap eftir jafnan lokakafla

Mynd: CEV

Kvennalandslið Íslands lék seinni leik sinn þessa helgina þegar liðið mætti Austurríki í dag. Leikið var í Austurríki og var stemningin á leiknum frábær.

Í gær lék íslenska liðið gegn Slóvakíu og tapaði þar 0-3 en Slóvakía vann einnig 0-3 sigur á Austurríki þegar liðin mættust á föstudag. Leikurinn í dag var erfiður framan af en fyrstu tvær hrinurnar vann Austurríki nokkuð sannfærandi. Þriðja hrinan var mun betri en Austurríki stal sigrinum með minnsta mun. Austurríki vann leikinn því 3-0 og sótti sín fyrstu stig í keppninni.

Ísland 0-3 Austurríki (15-25, 13-25, 23-25). Lejla Sara Hadziredzepovic var stigahæst með 11 stig og Arna Sólrún Heimisdóttir skoraði 6 stig. Kora Schaberl og Anamarija Galic skoruðu 15 stig hvor fyrir Austurríki.

Ísland hefur því lokið leik þessa helgina en stutt er í næstu leiki liðsins. Stelpurnar halda til Slóveníu á fimmtudag og leika þar tvo leiki, föstudag og laugardag. Andstæðingarnir þá helgina verða Slóvenía og Lettland. Fyrrum landsliðsþjálfari Íslands, Daniele Capriotti, þjálfar lettneska liðið og mun því mæta sínu gamla liði.