Sveiflukennt gegn Tyrklandi

Mynd: CEV

Ísland mætti Tyrklandi í dag á lokamóti EM U18 í karlaflokki. Kvennaliðið hefur lokið keppni en drengirnir eiga nokkra leiki eftir.

Fyrsti frídagur liðsins á mótinu var í gær og komu bæði lið fersk inn í leik dagsins. Tyrkland hafði ekki náð sér á strik í mótinu og tapað öllum leikjum sínum til þessa, líkt og íslenska liðið. Fyrsta hrinan var jöfn framan af en Tyrkland stakk af um miðbik hennar og vann á sannfærandi hátt. Önnur hrinan var jafnari en nú var það Ísland sem var skrefi á undan. Aftur var það lokakaflinn sem skildi liðin að því Tyrkland vann aðra hrinu naumlega.

Þriðja hrina leiksins var sú ójafnasta en þar náði Tyrkland snemma góðri forystu. Hún reyndist íslenska liðinu of mikil og náðu þeir aldrei að minnka muninn að ráði. Tyrkland vann leikinn þar með 0-3 og náði í fyrsta sigur sinn á mótinu.

Ísland 0-3 Tyrkland (14-25, 21-25, 10-25). Ágúst Leó Sigurfinnsson skoraði 8 stig fyrir Ísland en Hákon Freyr Arnarsson og Hafliði Rafnar Traustason skoruðu 6 stig hvor.

Áfram heldur mótið en á morgun leikur Ísland gegn öflugu liði Ítalíu. Leikurinn er sýndur á YouTube rás CEV eins og aðrir leikir mótsins og hefst klukkan 18:00.