Sveiflukenndur leikur gegn finnsku stelpunum

Mynd: Peter Eichstädt

Íslenska kvennalandsliðið mætti Finnlandi í dag en í þetta sinn fara leikir helgarinnar fram í Digranesi, Kópavogi. Finnska liðið mætti með sterkt lið til leiks en íslensku stelpurnar byrjuðu leikinn af krafti.

Finnland er í baráttu um efstu sæti European League en Ísland er enn í leit að sínum fyrsta sigri í keppninni. Munurinn á liðunum var hins vegar ekki mikill framan af fyrstu hrinu þar sem jafnt var á öllum tölum. Um miðja hrinu seig finnska liðið fram úr en Ísland náði að klóra í bakkann með flottum lokakafla.

Næstu tvær hrinur voru áþekkar þeirri fyrstu þar sem að Ísland gerði vel snemma en hægt og rólega tók Finnland yfir og jók forskot sitt smám saman. Finnland vann aðra og þriðju hrinu sannfærandi og kláraði leikinn 0-3.

Ísland 0-3 Finnland (18-25, 14-25, 15-25). Lejla Sara Hadziredzepovic skoraði 8 stig fyrir Ísland en Sara Ósk Stefánsdóttir kom næst með 5 stig. Ella Peltomaa var stigahæst hjá Finnlandi með 11 stig.

Ísland leikur seinni leik sinn á sunnudag þegar liðið mætir Spáni. Það verður lokaleikur kvennaliðsins í European League þetta sumarið og hvetur Volleyball.is lesendur og annað áhugafólk til þess að fjölmenna í Digranesið og hvetja stelpurnar okkar.