Unbroken deildirnar fara af stað í dag með leikjum í bæði karla- og kvennaflokki. Kvennalið HK tilkynnti í vikunni um komu tveggja leikmanna í lið sitt.
Miklar mannabreytingar hafa verið á flestum liðum Unbroken deildanna en fróðlegt verður að sjá hvernig liðum verður stillt upp í fyrstu leikjunum. Kvennalið HK er eitt þeirra liða sem hefur bætt í sinn hóp en síðustu tvo daga voru tveir sterkir leikmenn tilkynntir hjá liðinu.
Sigrún Marta Jónsdóttir er frelsingi sem hefur leikið með Völsungi allt frá yngri flokkum. Hún var mikilvæg í öflugu liði Völsungs sem varð í 2. sæti Íslandsmótsins 2024/25 og tók í kjölfarið þátt í landsliðsverkefnum sumarsins 2025. Þar lék hún með kvennalandsliðinu í CEV Silver League en liðið náði góðum árangri á mótinu og vann þrjá af sex leikjum sínum. Hjá HK mun Sigrún Marta mynda sterkasta frelsingjapar deildarinnar en Savannah Marshall lék sem frelsingi liðsins á síðasta tímabili og var einn besti leikmaður deildarinnar.

Arna Sólrún Heimisdóttir snýr aftur í HK eftir eitt tímabil á Spáni. Þar lék hún með liði Sant Joan en einnig lék Jóna Margrét Arnarsdóttir með liðinu. Arna er miðjumaður og kemur til með að styrkja bæði hávörn og sókn HK töluvert. Arna lék með meistaraflokki HK í fjölmörg tímabil fyrir veruna á Spáni og þekkir hópinn því vel. Þá lék hún einnig með landsliði Íslands í sumar.

HK leikur á heimavelli í dag og á morgun þegar liðið mætir Völsungi í fyrstu leikjum sínum. Þessa helgina mætast einnig lið Þróttar/BFH og KA en þeir leikir fara fram á Akureyri. Afturelding og Þróttur Fjarðabyggð spila ekki þessa helgina en mæta til leiks í byrjun október.