Staðan í dönsku deildinni

Danska deildin og bikarkeppnin hafa haldið áfram af fullu síðustu vikurnar og hefur gengið misvel hjá liðunum eftir þétta leikjadagskrá. Sum liðin hafa fundið góðan takt á meðan önnur hafa lent í smá niðursveiflu.

Odense Volleyball

Hjá Odense Volleyball, þar sem Galdur Máni og Máni Matthíasson spila, hefur liðið átt erfiðan kafla og tapað þremur leikjum í röð eftir góða byrjun á tímabilinu.

Þann 25. október tapaði liðið 3–1 gegn Gentofte Volleyball (25–22, 25–22, 22–25, 27–25). Eftir það fylgdu töp gegn Nordenskov IUF 3–1 (16–25, 26–24, 25–23, 25–18), og gegn VK Vestsjælland 3–0 (25–18, 25–22, 25–20).

Odense náði þó að snúa blaðinu við þegar liðið mætti Ikast KFUM þann 14. nóvember og sigraði 3–1 (25–20, 25–20, 26–28, 25–21).

Liðið situr nú í 5. sæti deildarinnar með 3 sigra úr 6 leikjum og samtals 8 stig.

Í bikarkeppninni mætti Odense Volleyball Frederiksberg Volley í 16 liða úrslitum 1. nóvember og tryggði sér öruggan 3–0 sigur. Þeir mæta því Ikast KFUM í 8 liða úrslitum laugardaginn 22. nóvember kl. 13:00 á íslenskum tíma.

Næsti deildarleikur þeirra verður 29. nóvember gegn nágrönnum sínum í Middelfart VK.


Middelfart VK

Hjá Middelfart VK þar sem Hreinn Kári leikur, hefur gengið einstaklega vel á tímabilinu. Liðið er á toppi deildarinnar með 4 sigra úr 4 leikjum og 11 stig.

Í síðasta deildarleik sigraði liðið Amager Volley 3–0 (25–19, 25–18, 25–15).

Í bikarnum mættu þeir Kolding VK í 16 liða úrslitum og sigruðu þá 3–0. Liðið er því komið í 8 liða úrslit þar sem það mætir Hvidovre VK laugardaginn 22. nóvember kl. 13:30 á íslenskum tíma.

Næsti deildarleikur Middelfart VK er miðvikudaginn 26. nóvember gegn Ikast KFUM.


Holte IF

Holte IF þar sem Sara Ósk spilar, hafa átt gott tímabil og sitja á toppi deildarinnar með 6 sigra úr 6 leikjum og 18 stig.

Holte sigraði DHV Odense 3–0 þann 8. nóvember (25–23, 25–12, 25–15) og sigraði síðan systra lið sitt Farum VK 3–0 (25–16, 25–10, 25–20).

Þann 18. nóvember mætti Holte sterku liði ASV Elite í toppbaráttu um fyrsta sætið og sigruðu Holte 3–0 (25–23, 25–17, 25–22).

Í bikarnum vann Holte IF Hvidovre VK 3–0 í 16 liða úrslitum og mætir KSV í 8 liða úrslitum 23. nóvember.

Áður en Holte heldur áfram í deildinni þann 29. nóvember gegn Gentofte Volleyball, spilar liðið stóran leik í CEV Challenge Cup gegn UVC Holding GRAZ 25. nóvember kl. 18:00 á íslenskum tíma á heimavelli.


Allir leikir dönsku deildarinnar eru sýndir inn á eftirfarandi slóð:
https://jfmplay.dk/volleyball