Íslenska U19 landsliðið í strandblaki lauk í dag keppni í Andorra þar sem SCA mót var haldið um helgina. Leikið var í drengjaflokki að þessu sinni.
Sölvi og Svanur Hafþórssynir fóru í gegnum riðlakeppnina án þess að tapa hrinu en þar unnu þeir 2-0 sigra gegn Andorra, Norður-Írlandi, Gíbraltar og Skotlandi. Þar með komust strákarnir beint í undanúrslit og þar mættu þeir Gíbraltar. Að þessu sinni þurftu Sölvi og Svanur að hafa meira fyrir sigrinum en þeir unnu þó 2-0 sigur að lokum. Í dag var svo leikið til úrslita en þar beið lið Andorra. Ísland vann úrslitaleikinn sannfærandi og tryggði sér gullið.
Með þessum glæsilega árangri hafa íslensku strákarnir tryggt sér sæti á lokamóti EM á næsta ári. Þar verður liðið komið upp í næsta aldursflokk svo drengirnir munu taka þátt í EM 2027 í flokki U20.
Næstu helgi fer fram sams konar mót í kvennaflokki en þá sendir Ísland tvö lið til leiks. Annars vegar eru það Helena Kristjánsdóttir og Sóldís Júlía Sigurpálsdóttir en hins vegar Katla Björg Beck og Sveinbjörg Lilja Ingólfsdóttir.