Seinni tveir leikir 8 liða úrslita VNL fóru fram í Ningbo Beilun, Kína í dag.
Í fyrri leik dagsins mættust Frakkland og Slóvenía en þar hafði Slóvenía betur 3-1 (25–22, 15-25, 25-19, 25-18). Ríkjandi meistarar Frakklands eru því úr leik. Stigahæstur í leiknum í dag var Théo Faure leikmaður Frakklands með 19 stig. Stigahæstur í liði Slóveníu var Tonček Štern með 16 stig.

Seinni viðureign dagsins var leikur Japan og Póllands þar sem Pólland hafði betur 3-0 (25-23, 26-24, 25-12). Stigahæstur í leiknum var Kento Miyaura leikmaður Japans með 17 stig. Stigahæstur í liði Póllands var Kewin Sasak með 15 stig.
Leikir í undanúrslitum eru eftirfarandi:
Laugardaginn 2.ágúst
- 07:00 Ítalía – Slóvenía
- 11:00 Brasílía – Pólland