Slóvenía hafði betur í háspennuleik gegn Þýskalandi

Sjötti leikdagur HM karla fór fram í dag og lauk keppni í fjórum af riðlunum átta. Mikil barátta var í D-riðli og E-riðli.

Portúgal og Kúba börðust um að fylgja Bandaríkjunum áfram úr D-riðli en Portúgal átti fyrsta leik keppnisdagsins. Þar unnu þeir 3-2 sigur gegn Kólumbíu en þar með kviknaði von hjá Kúbu. Með 3-0 eða 3-1 sigri myndu þeir komast áfram á kostnað Portúgals. Kúba átti fínan leik en það dugði ekki til, Bandaríkin unnu leikinn 3-1 og því fara Portúgal og Bandaríkin áfram á næsta stig mótsins. Kúba situr eftir með sárt ennið.

Lið Portúgals er komið í 16-liða úrslit á sínu fyrsta HM í 23 ár (Mynd: FIVB)

Katar og Rúmenía mættust í leik sem skipti litlu sem engu máli þar sem að bæði lið voru úr leik. Sá leikur var þó hin mesta skemmtun og vann Katar 3-1 sigur í mjög jöfnum leik. Búlgaría mætti Síle í lokaleik sínum og var aðeins formsatriði að búlgarska liðið myndi vinna þann leik. Það gekk eftir og vann Búlgaría auðveldan 3-0 sigur.

Kanada og Tyrkland mættust í úrslitaleik G-riðils og hafði Tyrkland betur. Þeir voru heilt yfir mun betri en Kanada sem fara þó upp úr riðlinum með Tyrkjum. Pólverjar mættu Hollandi þar sem barist var um efsta sæti B-riðils. Hollendingar byrjuðu vel og unnu fyrstu hrinu en Pólland vann næstu þrjár. Leikurinn var jafn og spennandi en með sigrinum tryggir Pólland sér efsta sæti riðilsins og Holland fylgir þeim inn í útsláttarkeppnina.

Slóvenía og Þýskaland mættust í stórleik dagsins þar sem að liðin börðust um að fylgja Búlgaríu áfram úr E-riðli. Leikurinn olli ekki vonbrigðum en liðin skiptust á að vinna fyrstu þrjár hrinurnar. Eftir að Slóvenía vann þá þriðju 31-29 leiddi liðið 2-1 og tryggði sér svo sigurinn að lokum. Slóvenar fara því áfram en Þýskaland hefur lokið keppni á mótinu.

Í lokaleik dagsins mættust Japan og Líbía þar sem bæði lið voru úr leik en lögðu allt í að klára mótið á sigri. Japanir hafa ekki náð sér á strik en unnu lokaleikinn auðveldlega. Þeir enda í 3. sæti G-riðils á eftir Tyrklandi og Kanada.

Portúgal 3-2 Kólumbía (23-25, 21-25, 25-20, 25-21, 15-11). Nuno Marques skoraði 19 stig fyrir Portúgal en Ronald Jimenez og Juan Benavides skoruðu 18 stig hvor fyrir Kólumbíu.

Katar 3-1 Rúmenía (20-25, 25-23, 25-20, 25-22). Youssef Oughlaf skoraði 15 stig fyrir Katar en hjá Rúmeníu var Cristian-Daniel Chitigoi stigahæstur með 16 stig.

Búlgaría 3-0 Síle (25-17, 25-12, 25-12). Alex Nikolov var enn og aftur stigahæstur hjá Búlgaríu með 17 stig en Vicente Parraguirre og Vicente Valenzuela skoruðu 7 stig hvor fyrir Síle.

Bræðurnir Alex (23) og Simeon (1) hafa farið vel af stað með Búlgaríu í fyrstu leikjum mótsins (Mynd: FIVB)

Kanada 0-3 Tyrkland (21-25, 16-25, 25-27). Nicholas Hoag, Sharone Vernon-Evans og Fynnian McCarthy skoruðu 8 stig hver fyrir Kanada. Adis Lagumdzija var stigahæstur í liði Tyrklands með 15 stig.

Bandaríkin 3-1 Kúba (25-17, 25-22, 23-25, 27-25). Cooper Robinson skoraði 14 stig fyrir Bandaríkin en Jose Masso og Javier Concepcion skoruðu 12 stig hvor fyrir Kúbu.

Micah Christenson, fyrirliði og uppspilari Bandaríkjanna, er mikill leiðtogi í tiltölulega óreyndu liði Bandaríkjanna (Mynd: FIVB)

Pólland 3-1 Holland (22-25, 25-23, 25-19, 25-22). Bartosz Kurek var stigahæstur Pólverja með 19 stig en hjá Hollandi var Michiel Ahyi stigahæstur sem fyrr með 23 stig. Ahyi hefur skorað 61 stig í þremur leikjum sínum.

Slóvenía 3-1 Þýskaland (25-21, 17-25, 31-29, 25-22). Toncek Stern skoraði 18 stig fyrir Slóveníu og Ziga Stern, bróðir Toncek, bætti við 16 stigum. Erik Röhrs skoraði 22 stig fyrir Þýskaland.

Japan 3-0 Líbía (25-20, 25-17, 25-12). Kento Miyaura var stigahæstur hjá Japan með 15 stig en í liði Líbíu var Ahmed Ilkhbayri atkvæðamestur með 11 stig.

Japan vann góðan sigur í lokaleik sínum á HM (Mynd: FIVB)

Nokkrar viðureignir eru staðfestar fyrir 16-liða úrslitin en þau fara fram dagana 20.-23. september. Hér má sjá þær viðureignir sem er ljóst að fari fram:

20. september: Tyrkland – Holland

20. september: Pólland – Kanada

22. september: Bandaríkin – Slóvenía

22. september: Búlgaría – Portúgal

Riðlakeppninni lýkur á morgun þegar síðustu átta leikirnir fara fram. Frakkland, Argentína og Ítalía eru öll í vandræðum og flestir leikir morgundagsins skipta miklu máli. Aðeins leikur Belgíu og Alsír hefur ekki áhrif á það hvaða lið fara í útsláttarkeppnina en lið Belgíu er öruggt áfram og Alsír er úr leik.

Leikir morgundagsins – Fimmtudagur 18. september

  • Brasilía – Serbía 02:00
  • Finnland – Suður-Kórea 02:30
  • Egyptaland – Túnis 05:30
  • Belgía – Alsír 06:00
  • Filippseyjar – Íran 09:30
  • Frakkland – Argentína 10:00
  • Tékkland – Kína 13:00
  • Ítalía – Úkraína 13:30