Sir Sicoma Monini Perugia er Heimsmeistari félagsliða 2025

Í kvöld fór fram úrslitaleikur á HM félagsliða í karlaflokki en þar mættust Japanska liðið Osaka Bluteon og Ítalska liðið Sir Sicoma Monini Perugia.

Evrópumeistararnir frá Ítalíu byrjuðu leikinn betur og unnu fyrstu hrinuna 25-20 eftir misheppnaða uppgjöf Osaka. Stigahæsti leikmaður Perugia á mótinu, Wassim Ben Tara var stigahæstur í hrinunni með 6 stig. Perugia fóru vel af stað í leit að þriðja Heimsmeistaratitlinum en liðið varð Heimsmeistari árin 2022/2023 og 2023/2024.

Perugia kom sér í góða stöðu með sigri í annarri hrinu 25-21 og ljóst að liðsmenn Osaka voru komnir með bakið uppvið vegg.

Leikmenn Perugia fagna stigi

Þriðja hrina varð mun meira spennandi en þær fyrri og voru það Osaka sem leiddu allt fram að lokum þegar Perugia jafnaði 24-24. Hrinan fór því í upphækkun þar sem liðin skiptust á stigum. Loksins voru það Perugia sem höfðu betur 27-29 eftir frábæra laumu hjá uppspilara liðsins, ítalanum Simone Giannelli.

Sir Sicoma Monini Perugia eru því Heimsmeistarar félagsliða í þriðja skipti eftir 3-0 sigur.

Stigahæstur í leiknum var Wassim Ben Tara leikmaður Perugia með 16 stig.