Úrslitaleikur á Heimsmeistaramóti félagsliða í kvennaflokki fór fram í kvöld en þar mættust ítölsku liðin Savino Del Bene Scandicci og Prosecco DOC Imoco Conegliano.
Imoco Conegliano byrjuðu leikinn betur og voru með unna hrinu í höndunum 24-20 þegar Scandicci tókst á ótrúlegan hátt að jafna leikinn, hrinan endaði að lokum með sigri Scandicci 30-28. Þetta virtist sitja í leikmönnum Imoco Conegliano en Scandicci vann aðra hrinu leiksins örugglega 25-19 og voru því komnar í góða stöðu til að tryggja sér sinn fyrsta heimsmeistaratitil.
Stjörnuprýtt lið Imoco Conegliano kom hinsvegar til baka í þriðju hrinu og lönduðu sigri 25-21 og áttu því enn von á að snúa leiknum sér í vil. Þetta virtist hinsvegar ekki eiga að verða þeirra kvöld því að Scandicci voru mun öflugri í fjórðu hrinu, þrátt fyrir að Imoco Conegliano kæmu sér inní hrinuna undir lokinn þá var það ekki nóg. Scandicci kláraði hrinuna 25-23 með öflugri sókn sem hávörn Imoco Conegliano réði ekki við.
Savino Del Bene Scandicci er því Heimsmeistara félagsliða 2025 í sinni fyrstu tilraun.
Stigahæst í leiknum var Ekaterina Antropova leikmaður Scandicci með 25 stig. Stigahæst í liði Imoco Conegliano var Isabelle Haak með 20 stig.