Rut kjörin íþróttakona Aftureldingar 2025

Rut Ragnarsdóttir, frelsingi úr Aftureldingu, hefur verið útnefnd íþróttakona Aftureldingar fyrir árið 2025 en tilkynnt var um kjörið fyrr í kvöld.

Þessa dagana standa íþróttafélög og sérsambönd í ströngu við að veita íþróttafólki sínu viðurkenningar fyrir árangur og afrek á árinu sem er að líða. Eitt þeirra félaga er Afturelding en þar varð Rut Ragnarsdóttir hlutskörpust í vali á íþróttakonu ársins. Rut er einn af burðarstólpum kvennaliðs Aftureldingar og óskar Volleyball.is henni til hamingju með titilinn. Atli Fannar Pétursson var einnig tilnefndur fyrir hönd blakdeildar sem íþróttakarl Aftureldingar.

Hér að neðan má sjá tilkynningu Aftureldingar vegna kjörsins:

Íþróttakona Aftureldingar árið 2025 er Rut Ragnarsdóttir. Rut er fædd árið 2003 og hefur spilað allan sinn feril með Aftureldingu. Hún hefur æft blak frá því hún var barn og hefur tekið þátt í öllum yngri landsliðum Íslands. Í sumar sem leið var Rut einn af máttarstólpum íslenska A landsliðsins í blaki þegar Ísland tók þátt í Silver league sem er undankeppni EM. Rut hefur verið fasta manneskja í A landsliði kvenna undanfarin ár og hefur verið besti íslenski frelsinginn í blaki á Íslandi undanfarin ár og því einn af mátttarstólpum kvennaliðsins Aftureldingar sem komst í Final 4 í Kjörísbikarnum og í úrslitakeppnina um Íslandsmeistaratitilinn en lutu í lægra haldi fyrir Íslands og bikarmeisturunum. Rut er frábær fyrirmynd yngri iðkenda. Hún er alltaf jákvæð og tilbúin að aðstoða þegar til hennar er leitað.
Blakdeild Aftureldingar er ákaflega heppin og stolt af því að hafa Rut innan sinna raða.