Riðlakeppninni lokið í Meistaradeild karla

Riðlakeppni Meistaradeildar karla lauk í gærkvöldi þegar heil umferð fór fram. Leikið var í öllum riðlum sama kvöldið og var ansi mikið undir í baráttunni um sæti í útsláttarkeppninni.

Nóg var um að vera í Meistaradeildinni í kvöld þegar 10 leikir fóru fram. Barist var hart um sæti í útsláttarkeppninni en efstu tvö lið hvers riðils fá sjálfkrafa sæti í henni. Þá var eitt pláss laust fyrir “stigahæsta” liðið í 3. sæti síns riðils. Hin fjögur liðin sem ljúka leik í 3. sæti fara svo í útsláttarkeppnina í CEV Cup, næststerkustu Evrópudeildinni.

A-riðill

Ziraat frá Ankara kláraði riðlakeppnina með stæl þegar liðið vann Trentino 1-3 á útivelli og vann þar með alla leiki sína í riðlakeppninni. Liðið endar í efsta sæti en Trentino í öðru sæti. Ankara og Trentino fara bæði upp úr riðlinum og komu úrslitin ekki að sök hjá ítalska liðinu Trentino. Tours og Ljubljana áttu hörkuleik í kvöld en sitja bæði eftir. Ljubljana náði 3. sætinu og heldur því keppni áfram í CEV Cup.

Tours 3-2 ACH Ljubljana (25-19, 23-25, 18-25, 25-16, 15-13)

Itas Trentino 1-3 Ziraat Bankasi Ankara (20-25, 25-21, 21-25, 21-25)

B-riðill

LUK Lublin hafði tryggt sér efsta sæti B-riðils fyrir síðustu umferðina en vann engu að síður öruggan sigur gegn Galatasaray. Lublin vann því alla sex leiki sína en Galatasaray situr eftir í 3. sætinu og fer í CEV Cup. Belgíska liðið Roeselare vann nefnilega 3-1 sigur gegn öðru tyrknesku liði, Halkbank Ankara. Roeselare náði þar með 2. sætinu og fylgir Lublin upp úr riðlinum.

LUK Lublin 3-0 Galatasaray (25-17, 25-21, 26-24)

Knack Roeselare 3-1 Halkbank Ankara (23-25, 25-21, 25-20, 25-19)

C-riðill

Ítalska stórliðið Perugia vann auðveldan sigur í Berlin en liðið hafði áður tryggt sér efsta sæti riðilsins. Guaguas Las Palmas náði að kreista fram sigur í oddahrinu gegn Lvi Praha og þar með jafnaði liðið Berlin að stigum. Þar sem að Las Palmas hafði örlítið betra hrinuhlutfall fór liðið upp í 2. sæti og fylgir Perugia í næsta stig keppninnar. Berlin situr eftir með sárt ennið og spreytir sig í CEV Cup.

Lvi Praha 2-3 Guaguas Las Palmas (18-25, 28-30, 25-21, 25-19, 11-15)

Berlin Recycling Volleys 0-3 Sir Sicoma Monini Perugia (17-25, 18-25, 20-25)

D-riðill

Zawiercie frá Póllandi hafði tryggt sér afar góða stöðu í D-riðli og gulltryggði efsta sætið með sannfærandi sigri gegn Lüneburg í kvöld. Þar með var ljóst að Resovia myndi halda 2. sætinu og Lüneburg enda í því þriðja. Sporting nýtti sér þetta og vann óvæntan sigur gegn Resovia sem höfðu að litlu að keppa. Sporting vann því fyrsta sigur sinn í riðlinum en endar engu að síður í 4. sætinu.

Aluron CMC Warta Zawiercie 3-0 SVG Lüneburg (25-20, 25-17, 25-22)

Sporting CP 3-1 Asseco Resovia (25-22, 25-22, 19-25, 25-20)

E-riðill

Keppni í E-riðli reyndist afar jöfn og spennandi en topplið Lube hafði tryggt sér sæti í næsta stigi keppninnar. Montpellier og Warszawa börðust um áframhald í keppninni og svo fór að bæði lið fara áfram. Liðin enda jöfn að stigum með 10 stig hvort en Montpellier fær 2. sætið á hrinuhlutfalli. Bæði lið fara þó í sama pakka og taka þátt í svokölluðu Playoff 6 í útsláttarkeppninni. Leuven enda í 4. sæti riðilsins með aðeins eitt stig og tvær unnar hrinur.

Cucine Lube Civitanova 3-2 PGE Projekt Warszawa (25-23, 24-26, 25-19, 22-25, 15-12)

Volley Haasrode Leuven 0-3 Montpellier (21-25, 21-25, 22-25)

Framhaldið – Útsláttarkeppnin

Næsta stig keppninnar er það sem CEV kallar “Playoff 6”. Þar mætast þau 5 lið sem enduðu í 2. sæti sinna riðla auk liðsins sem hafði bestan árangur af þeim sem enduðu í 3. sæti. Þannig eru 6 lið sem berjast um 3 laus sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Sigurvegarar riðlanna 5 fara allir beint í 8-liða úrslitin. Leiktímar og dagsetningar í Playoff 6 og 8-liða úrslitum verða gerð ljós á næstu dögum.

Liðin sem unnu riðlana og fara þar með beint í 8-liða úrslit eru eftirfarandi:

A-riðill: Ziraat Bankasi Ankara (Tyrkland)

B-riðill: LUK Lublin (Pólland)

C-riðill: Sir Sicoma Monini Perugia (Ítalía)

D-riðill: Aluron CMC Warta Zawiercie (Pólland)

E-riðill: Cucine Lube Civitanova (Ítalía)

Playoff 6 – Viðureignir

Projekt Warszawa – Itas Trentino

Guaguas Las Palmas – Montpellier

Asseco Resovia – Knack Roeselare