Í dag lauk keppni í Volleyball Nations League (VNL) karlamegin. Meistarar ársins 2026 þekkja það vel að vinna til gullverðlauna í keppninni.
Alls tóku 18 þjóðir þátt í VNL árið 2026 og fóru efstu átta liðin í úrslitin. Leikin var útsláttarkeppni í þessari viku til að útkljá baráttu efstu átta liðanna. Síðustu leikirnir fóru fram í Kína en þar sem að Kínverjar héldu keppnina fengu þeir sæti í úrslitunum. Þeir áttu hins vegar slæmt mót og voru í raun í neðsta sæti keppninnar eftir hefðbundna deildarkeppni. Þeir tóku hins vegar sæti Búlgaríu (8. sæti) sem gestgjafar.
8- liða úrslit
Leikið var í 8-liða úrslitum á miðvikudag og fimmtudag en þar stóð upp úr sigur Bandaríkjanna gegn Ítalíu í stórleik. Ítalir komust alla leið í úrslit í fyrra en Bandaríkin áttu flottan leik og unnu 3-0 sigur. Þá vann Pólland 3-1 sigur gegn Úkraínu og Japan vann 3-1 sigur gegn Kína. Slóvenía vann Tyrkland 3-0 í leik sem tók rúmar tvær klukkustundir (25-21, 35-33, 39-37).
Undanúrslit
Tveir stórleikir voru á dagskrá í undanúrslitum en fyrst á dagskrá var leikur Slóveníu og Póllands. Leikurinn varð aldrei eins spennandi og vonast var eftir en Pólverjar unnu sannfærandi 3-0 sigur og tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum. Seinni leikur dagsins var viðureign Japan og Bandaríkjanna en sá varð bæði langur og æsispennandi. Leikurinn fór alla leið í oddahrinu en þar höfðu Bandaríkjamenn betur og unnu 15-13.
Úrslitadagurinn
Lokadagurinn hófst á leik Japan og Slóveníu um bronsverðlaunin. Japan hafði áður unnið bæði silfur- og bronsverðlaun en besti árangur Slóveníu var 4. sæti (2021, 2024, 2025). Slóvenar byrjuðu betur en leikurinn var hnífjafn. Að lokum vann Slóvenía 3-1 sigur eftir hörkuleik og tryggði sér fyrstu verðlaun þjóðarinnar í VNL.
Pólland og Bandaríkin mættust í afar jöfnum úrslitaleik sem fór alla leið í oddahrinu. Pólland vann fyrstu hrinu 25-21 en næstu þrjár hrinur unnust með minnsta mun. Pólverjar reyndust þó mun sterkari í oddahrinunni og unnu nokkuð sannfærandi, 15-10. Pólverjar vinna því VNL-gull í þriðja sinn og hafa oftast allra orðið meistarar í keppninni. Bandaríkin þurfa hins vegar að sætta sig við fjórðu silfurverðlaunin í keppninni en þeir hafa aldrei náð í gull í VNL.
Tomasz Fornal var valinn besti leikmaður mótsins (MVP) en hann skoraði 15 stig fyrir Pólland í úrslitaleiknum.
