Í daga lauk VNL karla með leik um bronsið og í kjölfarið úrslitaleiknum sjálfum.
Fjörið hófst á leik Brasilíu og Slóveníu um bronsið en þeim leik lauk með sigri Brasilíu 3-1 (23–25, 25–20, 25–23, 25–19). Brasilía að næla sér í sitt fyrsta brons í keppninni en Brasilía hafði fyrir leikinn aðeins einu sinni nælt sér í verðlaun í keppninni, gull árið 2021.
Stigahæstur í leiknum var Rok Možič leikmaður Slóveníu með 21 stig. Stigahæstur í liði Brasilíu var Alan Souza með 18 stig.

Í úrslitaleiknum mættust svo Pólland og Ítalía og hafði Pólland þar betur 3-0 (25–22, 25–19, 25–14) í nokkuð þæginlegum sigri. Lið Ítalíu gerði sig sek um dýr mistök í annarri hrinu þegar þjálfarateymi Ítalíu gerðu mistök varðandi sendiröð liðsins og náðu Ítalir sér ekki á strik og í kjölfarið misstu þeir hausinn og úr varð aldrei alvöru leikur. Öruggur sigur hjá Póllandi sem gerði engin mistök og sigldu heim góðum sigri.
Pólland að vinna sitt annað gull í keppninni og sín sjöttu verðlaun.
Stigahæstur í leiknum var Wilfredo León leikmaður Póllands með 16 stig. Stigahæstur í liði Ítalíu var Daniele Lavia með 11 stig.