Pólland og Frakkland með örugga sigra

EM karla hélt áfram í dag þegar 8-liða úrslit keppninnar hófust. Tveir leikjanna fóru fram í dag en seinni tveir leikirnir fara fram strax á morgun.

Frakkland og Rúmenía mættust í fyrri leik dagsins og þeim fyrsta í 8-liða úrslitunum. Frakkar mættu til leiks í hefndarhug eftir tap gegn Rúmeníu í síðustu viku. Þeir frönsku voru mun öflugri og áttu frábæran leik. Rúmenar sáu aldrei til sólar en Frakkland vann leikinn örugglega 3-0. Frakkland tryggði sér þar með sæti í undanúrslitum EM og mætir þar annað hvort Ítalíu eða Finnlandi.

Pólverjar tóku á móti Þjóðverjum í seinni leik dagsins en fyrsta hrinan var afar spennandi. Pólland var skrefinu á undan alla hrinuna en vann hana naumlega, 25-23. Pólland vann auðveldan sigur í annarri hrinu en Þýskaland byrjaði vel í þriðju hrinunni. Um miðja hrinu virtust þeir hins vegar missa allan takt og í stöðunni 15-16 Þýskalandi í vil fór allt á hvolf hjá þeim. Pólland átti 10-1 kafla og vann hrinuna 25-17 til að tryggja 3-0 sigur og sæti í undanúrslitum. Þar mætir Pólland sigurvegaranum úr leik Belgíu og Slóveníu.

Á morgun fara seinni tveir leikirnir fram í 8-liða úrslitunum. Belgía og Slóvenía mætast klukkan 14:00 en Ítalía og Finnland mætast klukkan 19:05. Annað kvöld verður ljóst hvaða lið fara til Milano þar sem hið fræga Final 4 fer fram um helgina.

Úrslit dagsins – 22. september

Frakkland 3-0 Rúmenía (25-16, 25-19, 25-19). Théo Faure skoraði 19 stig fyrir Frakkland en Cristian-Daniel Chitigoi skoraði 11 stig fyrir Rúmeníu.

Pólland 3-0 Þýskaland (25-23, 25-17, 25-17). Wilfredo Leon skoraði 17 stig fyrir Pólland en Erik Röhrs skoraði 12 stig fyrir Þýskaland.

Leikir morgundagsins – 23. september

14:00 Belgía – Slóvenía

19:05 Ítalía – Finnland