Meistaradeild karla lauk í kvöld en Perugia og Zawiercie mættust í úrslitaleik keppninnar í Torino á Ítalíu. Undanúrslit fóru fram í gær, laugardag, en bronsleikurinn og úrslitaleikurinn fóru fram í dag, sunnudag.
Laugardagur 16. maí – Undanúrslit
Í fyrri undanúrslitaleiknum mættust Warszawa (Pólland) og Perugia (Ítalía). Lið Perugia vann keppnina árið 2025 og voru fyrirfram taldir afar líklegir til að verja titilinn. Pólska liðið lét þá þó hafa vel fyrir hlutunum en að lokum vann Perugia 3-0 sigur (19-25, 20-25, 24-26). Seinni undanúrslitaleikurinn fór fram strax í kjölfarið en þar mættust Zawiercie (Pólland) og Ziraat Bankasi (Tyrkland). Bæði lið höfðu nýlega tryggt sér titla í heimalandinu en Zawiercie reyndust sterkari og unnu nokkuð sannfærandi 3-1 sigur (25-19, 24-26, 25-19, 25-19). Þar með fóru Perugia og Zawiercie áfram í úrslitin en Warszawa og Ziraat léku um brons.
Sunnudagur 17. maí – Úrslit og brons
Á seinni keppnisdegi helgarinnar var leikið um sæti en bronsleikurinn var fyrst á dagskrá. Pólska liðið byrjaði betur en Kevin Tillie var í miklu stuði í leiknum. Liðin skiptust á að vinna hrinur en með Nimir Abdel-Aziz fremstan í flokki náðu Ziraat að knýja fram oddahrinu og vinna hana. Tyrkneska liðið tryggði sér þar með 3-2 sigur og bronsverðlaun en þetta er aðeins í þriðja sinn sem tyrkneskt félagslið vinnur til verðlauna í Meistaradeild karla. Árangur Warszawa er jafnframt þeirra besti árangur í sögu keppninnar.
Úrslitaleikurinn sjálfur var afar spennandi til að byrja með en eftir upphækkun vann Perugia fyrstu hrinu naumlega. Oleh Plotnytskyi og Wassim Ben Tara skoruðu nánast að vild og hélt Zawiercie illa í ítalska liðið eftir fyrstu hrinuna. Perugia vann aðra og þriðju hrinu þægilega og tryggði sér 3-0 sigur. Perugia vann því gullið annað árið í röð en liðið hefur tekið þátt í úrslitahelginni (Final 4) átta af síðustu níu tímabilum í Meistaradeildinni. Það sýnir vel hve gott og jafnt gengi liðsins hefur verið undanfarin ár.
Draumalið úrslitahelgarinnar
Frelsingi / MVP: Massimo Colaci (Perugia)
Kantar: Oleh Plotnytskyi (Perugia) og Tomasz Fornal (Ziraat)
Díó: Wassim Ben Tara (Perugia)
Uppspilari: Simone Giannelli (Perugia)
Miðjumenn: Mateusz Bieniek (Zawiercie) og Yuriy Gladyr (Zawiercie)
Þjálfari: Angelo Lorenzetti (Perugia)