Önnur oddahrina fyrir austan á lokadeginum

Þrír leikir fóru fram á lokadegi Unbroken deildarinnar í dag. Staða deildarinnar var nú þegar ráðin fyrir utan 5. og 6. sæti deildarinnar þar sem Vestri og Þróttur Fjarðabyggð gátu haft sætaskipti.

Völsungur og Vestri mættust á Húsavík en Völsungur vann leik gærdagsins 3-2. Spennan var ekki minni í dag en fyrstu tvær hrinurnar vann Vestri með minnsta mun. Völsungur svaraði með því að vinna þriðju hrinuna, einnig með minnsta mun, en Vestri kláraði leikinn með sigri í fjórðu hrinunni. Sigurinn kom Vestra í 5. sætið en þeir þurftu að bíða eftir úrslitum frá Neskaupstað.

Þróttur Fjarðabyggð tók á móti Aftureldingu í Neskaupstað en þar fór leikur gærdagsins einnig í oddahrinu. Afturelding hafði betur 2-3 í þeim leik en í dag byrjaði Afturelding vel. Mosfellingar unnu fyrstu hrinu nokkuð sannfærandi og aðra hrinuna eftir spennandi lokakafla. Heimamenn komust á skrið í þriðju hrinu og unnu næstu tvær hrinur nokkuð auðveldlega. Aftur fór leikurinn í oddahrinu og líkt og fyrri daginn vann Afturelding naumlega. Þróttur F endar því tímabilið í 6. sæti, einu stigi á eftir Vestra.

Lokaleikur dagsins fór fram í Digranesi þar sem HK tók á móti KA. Norðanmenn unnu leik gærdagsins 1-3 og fyrsta hrinan í dag var hnífjöfn. KA vann hana naumlega en HK kom til baka og jafnaði 1-1. KA fór létt með heimamenn í þriðju hrinunni og virtist vera að sigla sigrinum heim en HK gafst ekki upp. KA var þó skrefi á undan og kláraði fjórðu hrinuna. Þar með vann KA 1-3 sigur líkt og í leik gærdagsins.

Kjörísbikarinn fer fram í komandi viku en í lok mánaðar hefst úrslitakeppnin um Íslandsmeistaratitilinn.

Úrslit dagsins í Unbroken deild karla – Sunnudagur 8. mars

Völsungur 1-3 Vestri (23-25, 26-28, 26-24, 22-25)

Þróttur Fjarðabyggð 2-3 Afturelding (19-25, 23-25, 25-18, 25-18, 13-15)

HK 1-3 KA (24-26, 25-20, 14-25, 22-25). Riccardo Meucci var stigahæstur hjá HK með 12 stig en Jakub Pośpiech skoraði einnig 12 stig fyrir KA.