Ólafur Jóhann Júlíusson, alþjóðlegur dómari verður við störf í Hollandi í dag þar sem hann dæmir í CEV Challenge Cup.
Ólafur verður aðaldómari í leik Draisma Dynamo APELDOORN (Holland) og Fundación Cajasol ANDALUCÍA (Spánn) í 32. liða úrslitum í CEV Challenge Cup kvenna en leikurinn fer fram í Apeldoorn í Hollandi.
Ólafur er einn þriggja alþjóðlegra dómara frá Íslandi en allir hafa þeir verið á ferð og flugi við dómgæslu síðustu vikur.