Ólafur Jóhann dæmir til úrslita á Evrópumóti U18 kvenna.
Alþjóðadómarinn Ólafur Jóhann Júlíusson er um þessar mundir við störf á úrslitahelgi Evrópumóts U18 ára kvenna sem fram fer í Lettlandi og Litháen.
Mótið er haldið sameiginlega í löndunum tveimur og átti Ísland í fyrsta sinn lið á lokamóti í þessum aldursflokki. Íslenska liðið lék í riðli 1 sem fram fór í Lettlandi, en Ólafur dæmdi sjö leiki í riðli 2 sem var leikinn í Litháen dagana 1.–9. júlí. Að lokinni riðlakeppninni hélt hann til Lettlands þar sem úrslitaleikir mótsins fara fram.
Undanúrslitin voru leikin í gær. Í fyrri leiknum áttust við Ungverjaland og Tyrkland þar sem Tyrkir höfðu betur 3–1, eftir spennandi viðureign. Ólafur gegndi hlutverki myndbandsdómara í leiknum. Í síðari undanúrslitaleiknum hafði Ítalía betur gegn Frakkland með þremur hrinum gegn engri og var Ólafur þar varadómari.
Í dag verður leikið til verðlauna en lukkan 12:00 mætast Ungverjaland og Frakkland í leik um bronsið og verður Ólafur Jóhann aðaldómari þeirrar viðureignar.
Úrslitaleikur mótsins hefst síðan klukkan 15:00 þegar Ítalía og Tyrkland mætast í baráttunni um Evrópumeistaratitil U18 kvenna.
Að fá verkefni á úrslitahelgi mótsins er viðurkenning á góðum störfum dómara á mótinu og enn einn áfanginn á alþjóðlegum ferli Ólafs Jóhanns, en Ólafur dæmdi fyrir ári síðan úrslitaleik á Evrópumóti U16 ára kvenna sem fór fram í Albaníu en þar var Ólafur aðaldómari í leik Póllands og Tyrkland.
Ólafur er hinsvegar ekki eini alþjóðadómari Íslands sem dæmir á lokamóti um þessar mundir en Jón Ólafur Valdimarsson er við störf á Ítalíu þar sem hann dæmir í riðli 2 á Evrópumóti U18 ára karla.