Tveir leikir fóru fram karlamegin í Unbroken deildinni en leikið var á Ísafirði og í Neskaupstað.
Fyrir vestan tók Vestri á móti Þrótti Reykjavík en Vestri var aðeins 3 stigum á eftir Þrótturum fyrir leik dagsins. Gestirnir frá Reykjavík byrjuðu leikinn af krafti og leiddu 2-8 snemma í fyrstu hrinu. Þrátt fyrir það jafnaði Vestri leikinn um miðja hrinu en það dugði ekki til. Þróttur tók aftur við sér á lokakaflanum og vann nokkuð öruggan sigur. Önnur hrinan gekk illa hjá heimamönnum og Þróttarar völtuðu yfir þá. Aftur var það ójafn upphafskafli sem setti tóninn fyrir hrinuna.
Í þriðju hrinunni byrjaði Vestri mun betur en í þeim fyrri og leit lengi vel út fyrir að þeir myndu minnka muninn. Allt kom fyrir ekki og með góðum kafla eftir miðbik hrinunnar tóku gestirnir völdin og unnu sannfærandi sigur. Þróttur R vann leikinn þar með 0-3 og sótti góðan sigur á Ísafjörð.
Þróttur Fjarðabyggð mætti KA í seinni leik dagsins en þessi lið mættust einnig í gær. Þar hafði KA betur í jöfnum leik. KA er í harðri baráttu á toppi deildarinnar en Þróttur F var aðeins einu stigi frá botnsætinu fyrir leikinn. Ekki var að sjá á byrjun leiksins að Þróttur F væri botnlið gegn toppliði KA. Fyrsta hrina var hnífjöfn og Þróttur F hafði forystu undir lok hrinunnar. Eftir æsispennandi lokakafla vann Þróttur F og leiddi því 1-0.
Önnur hrina gekk enn betur hjá heimamönnum sem tóku forystuna snemma og leiddu alla hrinuna. Hana unnu þeir sannfærandi í þetta skiptið og topplið KA lent 0-2 undir fyrir austan. Dæmið snerist algjörlega við í þriðju hrinu þegar KA vann auðveldan sigur og norðanmenn bættu um betur með því að vinna einnig þá fjórðu, þó eftir mun jafnari leik. Oddahrina var því leikin og þar leiddi KA allt frá upphafi hennar. Munurinn varð ekki mikill en sigur KA nokkuð sannfærandi.
Raul Garcia Asensio skoraði 26 stig fyrir Þrótt F en næstir komu Leonardo Aballay og Arturo Yesares Moreno með 14 stig hvor. Í liði KA var Miguel Mateo Castrillo stigahæstur með 21 stig og Ágúst Leó Sigurfinnsson skoraði 17 stig.

Þar með heldur KA 2. sæti deildarinnar og er nú með 25 stig eftir 11 leiki, rétt á eftir toppliði Hamars. Þróttur Reykjavík er einnig enn í 3. sæti og Þróttur Fjarðabyggð mjakar sér nær Völsungi og jafnframt fjær botni deildarinnar.
Í Unbroken deild karla verður leikið nokkuð þétt fyrri hluta desember en á miðvikudag mætast Hamar og Afturelding í síðasta leik nóvembermánaðar. Afturelding getur blandað sér í toppbaráttuna með sigri en Hamar situr á toppi deildarinnar.
Úrslit dagsins í Unbroken deild karla – Sunnudagur 23. nóvember
Vestri 0-3 Þróttur Reykjavík (19-25, 13-25, 20-25)
Þróttur Fjarðabyggð 2-3 KA (27-25, 25-19, 15-25, 22-25, 12-15)