Naumt tap hjá strákunum í hörkuleik

Mynd: CEV

Ísland mætti Norður-Makedóníu í European League í dag en þetta var síðari leikur liðsins þessa helgina. Íslensku strákarnir áttu hörkuleik og létu Makedóna aldeilis hafa fyrir hlutunum.

Ísland var enn í leit að sínum fyrsta sigri í keppninni en Norður-Makedónía hafði unnið einn leik til þessa. Ísland byrjaði fyrstu hrinu vel og var jafnt framan af hrinu. Þeir makedónsku treystu mikið á fyrirliða sinn, hinn reynslumikla Nikola Gjorgiev, sem fór mikinn í leiknum. Ísland tapaði hrinunni 21-25 en munurinn á liðunum var lítill. Norður-Makedónía náði þægilegu forskoti í upphafi annarrar hrinu sem reyndist dýrkeypt. Ísland var hársbreidd frá sigri en hrinunni lauk 23-25 fyrir Makedóna.

Þriðja hrina leiksins var sú ójafnasta hingað til en Norður-Makedónía hélt þægilegu forskoti frá upphafi hrinu. Ísland lék ágætlega en náði ekki að brúa bilið. Makedónar unnu hrinuna 19-25 og leikinn þar með 0-3.

Ísland 0-3 Norður-Makedónía (21-25, 23-25, 19-25). Þórarinn Örn Jónsson skoraði 13 stig fyrir Ísland en Hafsteinn Már Sigurðsson bætti við 11 stigum. Nikola Gjorgiev skoraði 24 stig fyrir Norður-Makedóníu.

Ísland hefur lokið keppni þessa helgina en stutt er í næstu leiki. Helgina 19.-21. júní fara landsleikir fram í Digranesi en þá verður leikið í bæði karla- og kvennaflokki. Ísland mætir Finnlandi og Slóvakíu í karlaflokki en leikirnir fara fram föstudag 19. júní og sunnudag 21. júní.