Mótinu lokið hjá U18 stelpunum

Mynd: CEV

Bæði drengja- og stúlknalið Íslands léku á EM í dag, líkt og í gær. Stúlknaliðið lék sinn síðasta leik en strákarnir sinn þriðja á þremur dögum.

Drengirnir áttu fyrri leik dagsins og byrjuðu frábærlega gegn Slóvenum. Í upphafi fyrstu hrinu var Slóvenía sterkari aðilinn en eftir því sem leið á saxaði Ísland á forskotið. Íslensku strákarnir leiddu 24-23 undir lokin en Slóvenía sneri leiknum sér í vil og vann 24-26. Önnur hrina leiksins var ójafnari þar sem Ísland náði sér ekki á strik. Slóvenía vann þægilegan sigur og leiddi 0-2. Leikur Íslands batnaði aftur í þriðju hrinunni en Slóvenar voru sterkari og tryggðu sér 0-3 sigur.

Stelpurnar mættu Póllandi í seinni leik dagsins og sínum síðasta á EM í Lettlandi. Liðið fór þokkalega af stað en vondur kafli um miðja fyrstu hrinu gerði liðinu erfitt fyrir. Í annarri hrinu varð brösugleg byrjun þeim að falli en inn á milli lék liðið mun betur. Vondu kaflarnir voru þó of langir og vann Pólland að lokum þægilegan 0-3 sigur. Alexandra Björg Andradóttir var valin leikmaður leiksins hja Íslandi.

Ísland 0-3 Slóvenía (24-26, 14-25, 18-25). Ágúst Leó Sigurfinnsson skoraði 11 stig fyrir Ísland en Símon Þór Gregorsson og Hákon Freyr Arnarsson bættu við 7 stigum hvor.

Ísland 0-3 Pólland (9-25, 14-25, 16-25). Þorbjörg Rún Emilsdóttir, Inga Björg Brynjúlfsdóttir og Alexandra Björg Andradóttir skoruðu 5 stig hver.

Stelpurnar hafa þar með lokið keppni á lokamóti EM í þetta skiptið. Samkeppnin var gríðarlega hörð en með mótinu fer gríðarleg reynsla í bankann fyrir komandi tímabil. Drengirnir halda sínu striki en fá þó frídag á morgun. Næst mæta þeir Tyrklandi klukkan 15:30 á laugardag.