Ævarr og félagar í Mjølni mættu hollenska liðinu Sliedrecht í CEV Evrópukeppninni, en því miður gekk þeim ekki að tryggja sigur.
Fyrri leikurinn fór fram 12. nóvember og sigraði Sliedrecht 0–3 (16–25, 18–25, 22–25).
Seinni leikurinn fór fram 19. nóvember og sigraði Sliedrecht einnig 0–3 (21–25, 23–25, 21–25) þrátt fyrir sterka frammistöðu hjá Mjølni.
Með þessum úrslitum fer Mjølnir ekki lengra í Evrópukeppninni í ár.