Leikið var í Meistaradeild karla í vikunni þar sem heil umferð fór fram. Enn eru nokkur lið ósigruð eftir tvær umferðir.
Fjörið hófst á þriðjudag með þremur leikjum en einnig var leikið á miðvikudag og fimmtudag. Í riðlakeppninni eru 5 fjögurra liða riðlar þar sem leikið er heima og heiman. Hvert lið spilar því 6 leiki áður en útsláttarkeppnin hefst. Leikið verður nánast vikulega í janúar og febrúar en þann 18. febrúar lýkur riðlakeppninni. Það er því nóg um að vera næstu 2 mánuði og mikið undir hjá liðunum.
Mikil spenna var í leikjum vikunnar og fóru alls fimm leikir alla leið í oddahrinu. Stórlið Perugia lenti í vandræðum á Kanaríeyjum og í Ankara mættust tvö tyrknesk lið í maraþonleik. Hinn belgíski Basil Dermaux átti frammistöðu vikunnar en lið hans, Knack Roeselare, var grátlega nálægt sigri gegn pólska liðinu Lublin.
A-riðill
Trentino sótti Tours heim í hörkuleik þar sem að fyrstu tvær hrinur leiksins buðu upp á mikla skemmtun. Ítalirnir reyndust hins vegar mun sterkari seinni hluta leiksins og unnu sannfærandi sigur.
Tours VB 1-3 Itas Trentino (25-19, 24-26, 12-25, 20-25). Nik Mujanovic átti stórleik fyrir Tours og skoraði 29 stig en Théo Faure skoraði 24 stig fyrir Trentino.
ACH Volley Ljubljana 0-3 Ziraat Bankasi Ankara (22-25, 15-25, 20-25). Toncek Stern skoraði 16 stig fyrir Ljubljana en Nimir Abdel Aziz skoraði 21 stig fyrir Ankara.
B-riðill
Halkbank og Galatasaray mættust í tyrkneskum slag þar sem Halkbank virtist ætla að sigla öruggum sigri heim. Galatasaray sneri dæminu hins vegar við og fór leikurinn í oddahrinu eftir 35-37 sigur Galatasaray í fjórðu hrinu. Þar vann Halkbank þó eftir upphækkun.
Halkbank Ankara 3-2 Galatasaray HDI (25-18, 25-19, 18-25, 35-37, 18-16). Yoandy Leal var stigahæstur hjá Halkbank með 29 stig en Matey Kaziyski bætti við 26 stigum. Jean Patry skoraði 23 stig fyrir Galatasaray og næstur kom Stephen Maar með 22 stig.
Knack Roeselare 2-3 LK Lublin (25-15, 20-25, 25-23, 20-25, 12-15). Basil Dermaux átti stórleik fyrir Roeselare og skoraði 31 stig. Stigaskorið dreifðist betur hjá Lublin en Wilfredo Leon var atkvæðamestur með 17 stig.
C-riðill
Spænska liðið Guaguas tók á móti stórliði Perugia þar sem að Perugia leiddi 0-2 eftir góða byrjun. Guaguas jafnaði hins vegar leikinn og Perugia vann að lokum 2-3 sigur.
Guaguas Las Palmas 2-3 Sir Sicoma Monini Perugia (23-25, 20-25, 25-22, 25-16, 10-15). Francisco Wallysson Souza skoraði 23 stig fyrir Guaguas en Wassim Ben Tara skoraði 22 stig fyrir Perugia.

Lvi Praha 2-3 Berlin Recycling Volleys (26-28, 25-22, 14-25, 25-20, 9-15). David Kollator skoraði 23 stig fyrir Praha en Jake Hanes skoraði 25 stig fyrir Berlin.
D-riðill
Resovia fór létt með Lüneburg þegar liðin mættust í Póllandi. Ekki er hægt að segja það sama um leik Sporting og Zawierce þar sem að allar hrinur leiksins voru jafnar og spennandi. Að lokum hafði Zawierce 0-3 sigur en sá var alls ekki auðveldur.
Asseco Resovia 3-0 SVG Lüneburg (25-14, 25-15, 25-19). Karol Butryn skoraði 19 stig fyrir Resovia en Ethan Champlin skoraði 10 stig fyrir Lüneburg.
Sporting CP 0-3 Aluron CMC Warta Zawierce (22-25, 24-26, 20-25). Edson Valencia og Lourenco Martins skoruðu 13 stig hvor fyrir Sporting en Aaron Russell var stigahæstur hjá Zawierce með 19 stig.
E-riðill
Ítalska liðið Lube vann auðveldan sigur í Belgíu þar sem liðið mætti Leuven. Montpellier vann hins vegar óvæntan sigur gegn Warszawa í æsispennandi leik. Allar hrinur leiksins voru jafnar og spennandi en úrslitin réðust í oddahrinu.
Volley Haasrode Leuven 0-3 Cucine Lube Civitanova (17-25, 17-25, 13-25). Gil Hofmans skoraði 12 stig fyrir Leuven en hjá Lube var Eric Loeppky atkvæðamestur með 14 stig.
Montpellier HSC 3-2 PGE Projekt Warszawa (25-21, 22-25, 27-25, 22-25, 15-12). Vincent Mathias skoraði 21 stig fyrir Montpellier en Linus Weber skoraði 19 stig fyrir Warszawa.