Á morgun, laugardaginn 13. september fer fram Meistarakeppni BLÍ í karla og kvennaflokki.
Leikirnir marka upphaf tímabilsins ár hvert en í Meistarakeppni BLÍ mætast íslandsmeistarar og bikarmeistarar síðasta tímabils og spila um titilinn Meistari Meistaranna. Verði sama lið íslands og bikarmeistari þá mætir liðið því liði sem lenti í öðru sæti á íslandsmótinu.
Í ár mætast í karlaflokki KA og Þróttur Reykjavík en KA varð bæði íslands og bikarmeistari á meðan Þróttur Reykjavík endaði í öðru sæti á íslandsmótinu. Í kvennaflokki mætast svo KA og Völsungur en KA varð bæði íslands og bikarmeistari á meðan Völsungur endaði í öðru sæti á íslandsmótinu.
Leikirnir fara fram í KA heimilinu á Akureyri og eru tímasetngar eftirfarandi:

Laugardagur 13. september
Karlaleikur: KA – Þróttur Reykjavík, 16:30
Kvennaleikur: KA – Völsungur, 19:00
Dómarar í karlaleiknum eru Sigurfinnur Líndal Stefánsson og Sævar Már Guðmundsson
Dómarar í kvennaleiknum eru Sævar Már Guðmundsson og Marinó Þorsteinsson