Meistarar krýndir í Evrópudeildunum

Mynd: CEV

Keppni í European League eða Evrópudeild landsliða lauk í gær þegar síðustu leikir fóru fram í bæði karla- og kvennaflokki. Leikið var heima og að heiman í úrslitunum líkt og gert var í undanúrslitum.

European League karla 2026

Finnland og Holland mættust í úrslitum karla en þessi lið voru af mörgum talin sigurstranglegust fyrir mótið. Finnland komst í úrslit eftir tvo sigra gegn Danmörku í undanúrslitum en Holland vann tvívegis gegn Ísrael. Liðin mættust svo í fyrri úrslitaleiknum á miðvikudag en þá var leikið í Finnlandi. Heimamenn unnu þann leik 3-1 eftir mikla spennu en þrjár fyrstu hrinur leiksins unnust með minnsta mun. Finnar tryggðu sér svo titilinn með öðrum 1-3 sigri í Hollandi og eru því fyrstu sigurvegarar nýju European League keppninnar.

Hinn öflugi Silvester Meijs lætur vaða gegn sterkri hávörn Finnlands (Mynd: CEV)

Luka Marttila var stigahæsti leikmaður Finnlands í einvíginu með 49 stig í leikjunum tveimur en hann var jafnframt valinn besti leikmaður keppninnar við verðlaunaafhendingu að leik loknum. Í liði Hollands var Silvester Meijs stigahæstur með 47 stig í leikjunum tveimur.

European League kvenna 2026

Í kvennadeildinni mættust Slóvenía og Svíþjóð í úrslitum en bæði lið komust í úrslitin án þess að tapa leik. Slóvenía vann Slóvakíu í undanúrslitum en Svíar unnu Ungverja. Úrslitaeinvígið hófst í Svíþjóð á miðvikudag en þar unnu heimakonur 3-2 sigur eftir æsispennandi leik. Slóvenía byrjaði afar vel á heimavelli þegar liðin mættust í seinni leik sínum en þar leiddu Slóvenar 2-0. Það dugði ekki til og Svíþjóð vann 2-3 endurkomusigur. Þar með tryggði liðið sér titilinn eftir tvo glæsilega sigra.

Þær sænsku fögnuðu vel þegar titillinn var í höfn (Mynd: CEV)

Stórstjarnan Isabelle Haak fór fyrir liði Svía í úrslitunum líkt og í flestum leikjum sænska landsliðsins. Hún skoraði 63 stig í leikjunum tveimur, þar af 35 í fyrri leiknum í Svíþjóð, og var valin besti leikmaður keppninnar. Fatoumatta Sillah var atkvæðamest hjá Slóveníu en hún skoraði 40 stig í úrslitaeinvíginu. Haak og Sillah eru liðsfélagar hjá stórliði Imoco Volley Conegliano á Ítalíu.