Meistaradeild kvenna fer aftur af stað í vikunni

Meistaradeild kvenna fer aftur af stað í vikunni eftir frí en 10 leikir eru á dagskrá.

Riðlakeppnin er farin af stað og nú þegar er búið að spila 4 leiki í hverjum af þeim 5 riðlum sem eru í gangi.

Í A riðli eru:

  • Savino Del Bene SCANDICCI (Ítalía)
  • VakifBank ISTANBUL (Tyrkland)
  • CS Volei Alba BLAJ (Rúmenía)
  • Volero LE CANNET (Frakkland)

Ítalska liðið Scandicci sem nýlega tryggði sér heimsmeistaratitil félagsliða er í efsta sæti með tvo sigra eftir fyrstu tvo leikina líkt og Vakifbank frá Tyrklandi.

Stigahæsti leikmaður A riðils er Vittoria Alice PIANI leikmaður CS Volei Alba BLAJ frá Rúmeníu en hún hefur skorað 42 stig í fyrsti tveimur leikjum liðsins í A riðli.

Leikir vikunnar í A riðli eru eftirfarandi:

  • 8.1.2026 , Savino Del Bene SCANDICCI – VakifBank ISTANBUL
  • 8.1.2026 , CS Volei Alba BLAJ – Volero LE CANNET

Í B riðli eru:

  • Fenerbahçe Medicana ISTANBUL (Tyrkland)
  • Igor Gorgonzola NOVARA (Ítalía)
  • Sport LISBOA e Benfica (Portúgal)
  • PGE Budowlani ŁÓDŹ (Pólland)

Tyrkneska liðið Fenerbahçe er á toppi B riðils með tvo sigra eftir fyrstu tvo leikina. Ítalska liðið Novara og Sport Lisboa frá Portúgal eru svo með sitthvorn sigurinn í 2. og 3. sæti.

Stigahæsti leikmaður B riðils er Tatiana TOLOK leikmaður Igor Gorgonzola NOVARA frá Ítalíu en hún hefur skorað 42 stig í fyrstu tveimur leikjum liðsins í B riðli.

Leikir vikunnar í B riðli eru eftirfarandi:

  • 6.1.2026 , PGE Budowlani ŁÓDŹ  – Fenerbahçe Medicana ISTANBUL
  • 8.1.2026 , Sport LISBOA e Benfica – Igor Gorgonzola NOVARA

Í C riðli eru: 

  • Numia Vero Volley MILANO (Ítalía)
  • Eczacibasi ISTANBUL (Tyrkland)
  • Olympiacos PIRAEUS (Grikkland)
  • OK Železničar LAJKOVAC (Serbía)

Ítalska liðið Vero Volley Milano er í efsta sæti C riðils með tvo sigra eftir fyrstu tvo leikina á meðan Eczacibasi frá Tyrklandi og gríska liðið Olympiacos eru í 2. og 3. sæti með sitthvorn sigurinn.

Stigahæsti leikmaður C riðils er Milica KUBURA leikmaður Olympiacos PIRAEUS en hún hefur skorað 39 stig í fyrstu tveimur leikjum liðsins í C riðli.

Leikir vikunnar í C riðli eru eftirfarandi:

  • 07.01.2026 , Eczacibasi ISTANBUL – Numia Vero Volley MILANO
  • 08.01.2026 , Olympiacos PIRAEUS – OK Železničar LAJKOVAC

Í D riðli eru:

  • A. Carraro Prosecco DOC CONEGLIANO (Ítalía)
  • ANKARA Zeren Spor Kulübü (Tyrkland)
  • DRESDNER SC (Þýskaland)
  • ŁKS Commercecon ŁÓDŹ (Pólland)

Ítalska liðið CONEGLIANO er í efsta sæti með tvo sigra eftir fyrstu tvo leikina á meðan ANKARA Zeren Spor Kulübü frá Tyrklandi og DRESDNER SC frá Þýskalandi sitja í 2. og 3. sæti með sitthvorn sigurinn.

Stigahæsti leikmaður D riðils er Isabelle HAAK leikmaður A. Carraro Prosecco DOC CONEGLIANO en hún hefur skorað 42 stig í fyrstu tveimur leikjum liðsins í D riðli.

Leikir vikunnar í D riðli eru eftirfarandi:

  • 7.01.2026 , DRESDNER SC – ANKARA Zeren Spor Kulübü
  • 07.01.2026 , ŁKS Commercecon ŁÓDŹ – A. Carraro Prosecco DOC CONEGLIANO

Í E riðli eru:

  • SSC Palmberg SCHWERIN (Þýskaland)
  • KS Developres RZESZÓW (Pólland)
  • LEVALLOIS PARIS Saint Cloud (Frakkland)
  • Maritza PLOVDIV (Búlgaría)

Þýska liðið SSC Palmberg er í efsta sæti með tvo sigra eftir fyrsti tvo leikina á meðan KS Developres RZESZÓW frá Póllandi og LEVALLOIS PARIS frá Frakklandi eru í 2. og 3. sæti með sitthvorn sigurinn.

Stigahæsti leikmaður E riðils er Taylor Denise BANNISTER leikmaður KS Developres RZESZÓW en hún hefur skorað 45 stig í fyrstu tveimur leikjum liðsins í E riðli.

Leikir vikunnar í E riðli eru eftirfarandi:

  • 07.01.2026 , Maritza PLOVDIV – LEVALLOIS PARIS Saint Cloud
  • 08.01.2026 , SSC Palmberg SCHWERIN – KS Developres RZESZÓW

Hægt er að fylgjast með leikjum í Meistaradeildinni á EuroVolley TV með því að smella hér.