Meistaradeild Evrópu er farin af stað en karlarnir léku fyrstu leiki sína í þessari viku.
Meistaradeild Evrópu er sterkasta keppnin fyrir félagslið á vegum CEV en þar fá allra bestu liðin að spreyta sig. Tvær aðrar keppnir fara einnig fram allt yfir tímabilið en það eru CEV Cup og CEV Challenge Cup. Þær keppnir eru skrefi neðar en Meistaradeildin en eru þó ógnarsterkar.
Lítið var um óvænt úrslit í þessari fyrstu keppnisviku í Meistaradeildinni en áhugavert er að fylgjast með liðsskipan þeirra félaga sem taka þátt. Töluverðar hræringar hafa orðið á leikmannahópum stórra liða en víða má sjá kunnugleg andlit. Sem dæmi má nefna Wilfredo Leon sem var á sínum stað í byrjunarliði Lublin frá Póllandi. Þetta tímabilið eru fjögur pólsk lið í keppninni en pólska deildin á flest þátttökulið í þetta sinn.

Iðulega er leikið frá þriðjudegi fram á fimmtudag þegar Meistaradeildin er á dagskrá og má nálgast leikjaplanið og stöðutöflur með því að smella hér. Næsta umferð hefst 6. janúar.
A-riðill
Ziraat Bankasi 3-1 Tours (25-21, 21-25, 25-19, 25-21). Nimir Abdel-Aziz var stigahæstur hjá Ziraat Bankasi með 18 stig en Nik Mujanovic skoraði 20 stig fyrir Tours.
Itas Trentino 3-0 ACH Ljubljana (25-23, 25-23, 25-21). Alessandro Michieletto skoraði 21 stig fyrir Trentino en Tonček Stern skoraði 15 stig fyrir Ljubljana.
B-riðill
LUK Lublin 3-0 Halkbank Ankara (25-20, 25-14, 25-13). Kewin Sasak skoraði 19 stig fyrir Lublin og Wilfredo Leon bætti við 18 stigum. Tsvetan Sokolov var stigahæstur í liði Ankara með 8 stig.
Galatasaray 3-2 Knack Roeselare (25-18, 19-25, 21-25, 25-23, 15-13). Stephen Maar skoraði 26 stig fyrir Galatasaray en Basil Dermaux skoraði 24 stig fyrir Roeselare.

C-riðill
Sir Sicoma Monini Perugia 3-1 Lvi Praha (24-26, 25-18, 25-18, 25-19). Kamil Semeniuk var stigahæstur hjá Perugia með 18 stig. David Kollator skoraði 20 stig fyrir Lvi Praha og Jiri Benda bætti við 18 stigum.
Berlin Recycling Volleys 3-0 Guaguas Las Palmas (25-20, 29-27, 25-17). Jake Hanes var stigahæstur hjá Berlin með 19 stig. Francisco Wallyson Bezerra Souza skoraði 12 stig fyrir Guaguas og Osmany Juantorena skoraði 7 stig.
D-riðill
Aluron CMC Warta Zawierce 3-1 Asseco Resovia (32-34, 25-22, 25-16, 25-20). Bartlomiej Boladz skoraði 25 stig fyrir Zawierce en Karol Butryn gerði enn betur og skoraði 27 stig fyrir Resovia.
SVG Lüneburg 3-1 Sporting CP (25-18, 25-19, 23-25, 25-23). Hinn sænski Daniel Gruvaeus var stigahæstur hjá Lüneburg með 20 stig en Edson Alberto Valencia Gonzalez skoraði einnig 20 stig fyrir Sporting.
E-riðill
Cucine Lube Civitanova 3-0 Montpellier (25-16, 25-17, 25-22). Aleksandar Nikolov, sem sló í gegn á HM fyrr í haust, var stigahæstur hjá Lube með 17 stig. Ezequiel Palacios skoraði 13 stig fyrir Montpellier og Tomas Lopez Pascual skoraði 12 stig.
PGE Projekt Warszawa 3-0 Haasrode Leuven (25-17, 25-17, 25-20). Yurii Semeniuk skoraði 12 stig fyrir Warszawa en atkvæðamestur hjá Leuven var Christophe Witvrouwen með 9 stig.