Eftir æsispennandi leiki gærdagsins er ljóst hvaða lið fara í 16-liða úrslit Evrópumóts kvenna og hvaða lið sitja eftir með sárt ennið eftir riðlakeppnina.
Í A-riðli var ljóst að Slóvenía og Ungverjaland myndu berjast um 4. sæti riðilsins en Lettland var úr leik. Þær lettnesku gerðu sér hins vegar lítið fyrir og unnu Ungverja en það var fyrsti sigur Lettlands á lokamóti EM síðan árið 1997. Þá varð á sama tíma ljóst að Ungverjar gátu ekki náð Slóveníu og úrslitin ráðin í riðlinum. Slóvenía og Ungverjaland mætast í dag en ekkert verður úr úrslitaleik um áframhald í keppninni. Tyrkland, Pólland og Þýskaland voru í efstu þremur sætunum og fara í 16-liða úrslit ásamt Slóveníu.
Staðan í B-riðli var nokkru skýrari en þar voru Serbar klárlega með öflugasta liðið. Þær unnu riðilinn örugglega en einnig fara Tékkland, Grikkland og Búlgaría áfram í 16-liða úrslit. Úkraína og Austurríki hafa hins vegar lokið leik á mótinu. C-riðill var afar áhugaverður en þar vann Belgía alla fimm leiki sína. Holland og Azerbaijan hafa unnið þrjá af fjórum leikjum sínum en mætast innbyrðis í dag. Ljóst er að þau fara áfram hvernig sem fer og einnig fylgir Portúgal þeim í útsláttarkeppnina. Spánn og Rúmenía sitja eftir.
D-riðill var líklega sá skemmtilegasti þegar litið er á liðin og viðureignir riðlakeppninnar. Ítalía vann alla fimm leiki sína en Frakkland kom skammt á eftir þeim og náði 2. sætinu. Þar á eftir kom Svíþjóð og Króatía tryggði sér 4. sæti naumlega. Þær króatísku þurftu á sigri að halda gegn Svartfjallalandi en Svartfellingar höfðu ekki enn unnið leik á mótinu. Króatía lenti 1-2 undir en náði að snúa leiknum við og tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum með 3-2 sigri. Slóvakía féll aftur á móti úr leik líkt og Svartfjallaland.
Stöðuna í riðlunum má sjá með því að smella hér.
Fjórir síðustu leikir riðlakeppninnar fara fram í dag þegar leikið er í A-riðli og C-riðli. Það er þó ekki mikið undir að þessu sinni þar sem að ljóst er hvaða fjögur lið fara áfram úr hvorum riðli fyrir sig. Liðin geta færst til innan sinna riðla en úrslit dagsins munu ekki valda afdrifaríkum breytingum. Allir leikir keppninnar eru í beinni útsendingu á EuroVolleyTV.
A-riðill
Pólland 3-0 Þýskaland (25-19, 25-23, 26-24). Magdalena Stysiak skoraði 25 stig fyrir Pólland.
Lettland 3-2 Ungverjaland (25-22, 18-25, 21-25, 33-31, 15-13). Marta Levinska skoraði 33 stig fyrir Lettland og Anett Németh skoraði 34 stig fyrir Ungverjaland.
B-riðill
Úkraína 0-3 Serbía (21-25, 22-25, 21-25). Aleksandra Uzelac skoraði 22 stig fyrir Serbíu.
Tékkland 3-0 Búlgaría (28-26, 25-19, 25-19). Aleksandra Milanova skoraði 15 stig fyrir Búlgaríu.
C-riðill
Holland 2-3 Belgía (25-27, 22-25, 25-22, 25-18, 13-15). Britt Herbots skoraði 30 stig fyrir Belgíu.
Portúgal 3-2 Rúmenía (15-25, 26-24, 20-25, 27-25, 15-13). Ana Monteiro skoraði 20 stig fyrir Portúgal og Ioana Baciu skoraði 20 stig fyrir Rúmeníu.
D-riðill
Króatía 3-2 Svartfjallaland (21-25, 25-20, 22-25, 25-14, 15-8). Nikoleta Perovic skoraði 28 stig fyrir Svartfjallaland.
Svíþjóð 1-3 Frakkland (26-28, 25-13, 20-25, 26-28). Isabelle Haak hélt uppteknum hætti og skoraði 39 stig fyrir Svíþjóð.