Livey tryggir sér sýningarrétt á Unbroken-deildinni

Blaksamband Íslands og streymisveitan Livey hafa gert með sér samning sem felur í sér að Livey kaupi sýningarrétt á Unbroken-deildinni tímabilið 2025–2026. Með samningnum fær Livey alfarið rétt til að sýna valda leiki í bæði kvenna- og karladeild unbroken.

Frá og með þessu tímabili verður einungis hægt að fylgjast með leikjum, sem sýndir verða á Livey, í gegnum áskrift . Áskriftin kostar 3.200 krónur á mánuði og veitir áskriftin aðgang að allri dagskrá veitunnar Livey sport, þar á meðal leikjum í Unbroken-deildinni. Allir leikir sem Livey sýnir eru aðgengilegir í sjónvarpsappinu

Samningurinn er liður í því að efla sýnileika blaks á Íslandi og tryggja aðdáendum deildarinnar aðgengi að völdum leikjum í gegnum stafrænar leiðir.

Fyrstu leikir tímabilsins fara fram nú um helgina og verða fjórir þeirra í beinni útsendingu á Livey og má nálgast aðgang að Livey inni á heimasíðu Blaksambandsins bli.is

• Laugardagur: KA – Hamar (karlar) kl. 15:00 og KA – Þróttur Reykjavík/Blakfélag Hafnarfjarðar (konur) kl. 17:30.

• Sunnudagur: HK – Völsungur (konur) kl. 15:00 og HK – Völsungur (karlar) kl. 17:15.

Aðrir leikir helgarinnar verða sýndir í opinni dagskrá á vefnum bli.is.

Áskrift af livey er hægt að nálgast hér.

Frétt fengin af facebook síðu Blaksambands Íslands