Næsta leiktímabil nálgast óðfluga og er því tímabært að fara yfir íslenskt blakfólk sem leikur erlendis. Nokkrir Íslendingar munu leika erlendis á næsta tímabili og flestir á Norðurlöndunum. Deildir fara ýmist af stað í september eða október vegna HM karla og kvenna. Hér má sjá stutta yfirferð á komandi verkefnum þessara öflugu leikmanna.
Máni Matthíasson – Odense Volleyball (Danmörk)

Máni er uppspilari sem hefur komið víða við. Hann er uppalinn í HK en hefur einnig leikið með Tromsø (Noregur), Bliesen (Þýskaland) og Hvidovre (Danmörk). Nú er förinni heitið til Odense þar sem hann gengur til liðs við mikið Íslendingafélag. Þar hittir hann fyrir miðjumanninn Galdur Mána Davíðsson. Þeir hafa náð vel saman með íslenska landsliðinu og munu mynda sterkt teymi í sóknarleik liðsins. Í sumar lék Máni með landsliði Íslands og var lykilmaður á Smáþjóðaleikunum sem og í Silver League.
Galdur Máni Davíðsson – Odense Volleyball (Danmörk)

Galdur hóf sinn feril fyrir austan en Huginn og Þróttur Neskaupstað voru hans uppeldisfélög í blakinu. Hann hefur leikið með Odense síðastliðin tímabil og hlutverk hans hjá liðinu vaxið smám saman. Liðið varð Danmerkurmeistari síðastliðin þrjú tímabil og stefnir á að viðhalda þeirri hefð á komandi tímabili. Eins og áður sagði mun hann leika með Mána hjá Odense og verður gaman að fylgjast með þeim leika listir sínar.
Ævarr Freyr Birgisson – Mjølnir (Færeyjar)

Ævarr Freyr er uppalinn í KA en hefur leikið með Odense síðustu tímabil og unnið þar fjölda titla. Hann leikur ýmist sem kantsmassari eða frelsingi og var í lykilhlutverki hjá liðinu. Nú færir hann sig hins vegar til Færeyja þar sem hann mun leika með stórliði Mjølnis. Þeir eru margfaldir meistarar þar í landi og munu taka þátt í Challenge Cup á tímabilinu. Ævarr fær því vonandi að láta ljós sitt skína í Evrópukeppni þennan veturinn. Ævarr var valinn blakmaður ársins 2024 og var það í fjórða skipti sem hann hlýtur þá nafnbót.
Hreinn Kári Erluson – Middelfart (Danmörk)

Hreinn Kári hefur verið í lykilhlutverki hjá Völsungi síðustu ár og er uppspilari að upplagi. Hann getur þó leyst flestar stöður vallarins og lék til að mynda sem frelsingi og kantsmassari með íslenska landsliðinu sumarið 2025. Hreinn Kári tók þátt í Smáþjóðaleikum og Silver League með landsliðinu og heldur nú einnig til Danmerkur, líkt og Máni. Hann hefur samið við lið Middelfart í Danmörku sem er í nágrenni við Odense. Því munu Íslendingar mætast í grannaslag í vetur.
Sigurður Kári Harðarson – Ikast (Danmörk)

Sigurður Kári lék með liði Hamars undanfarin tvö tímabil en heldur nú til Danmerkur í nám. Blakbærinn Ikast varð fyrir valinu hjá honum en þrátt fyrir smæðina koma margir af efnilegustu leikmönnum Danmerkur frá svæðinu. Þar er öflug blakmenning og síðustu ár hefur lið þeirra í efstu deild tekið miklum breytingum. Liðið er vel mannað og verður fróðlegt að sjá hvort Sigurður Kári fái tækifæri með aðalliði félagsins.
Heba Sól Stefánsdóttir – Raffeisen Volley Toggenburg (Sviss)

Heba Sól er HK-ingur sem hélt til Tékklands fyrir síðasta tímabil. Heba leikur sem díó og í Tékklandi var hún með liði Prerov. Nú mun hún færa sig yfir til Sviss og spila fyrir lið Toggenburg í efstu deild þar í landi. Heba Sól lék vel með íslenska kvennalandsliðinu í sumar sem gerði mjög vel í Silver League og hafnaði þar í 6. sæti. Nú fær Heba að reyna fyrir sér í öflugu umhverfi en vafalaust verður mikil samkeppni í sterku liði Toggenburg á tímabilinu.
Sara Ósk Stefánsdóttir – Holte IF (Danmörk)

Sara Ósk var valin blakkona ársins 2024 eftir frábært gengi með liði sínu Holte í Danmörku. Sara færði sig frá HK til DHV Odense árið 2021 en gekk til liðs við Holte tímabilið 2022/23. Lið Holte hefur verið afar sigursælt og Sara verið mikilvægur hluti þessa besta liðs Danmerkur. Sara er lykilmaður í kvennalandsliðinu og á komandi tímabili heldur hún áfram með Holte í Danmörku. Hún er því fimmti íslenski blakarinn sem leikur í Danmörku þetta tímabilið en sú eina í dönsku kvennadeildinni.
Eyrún Sól Einarsdóttir – TIF Viking (Noregur)

Eyrún leikur með meistaraliði TIF Viking í Noregi en hún kom til liðsins fyrir síðasta tímabil. Þar á undan lék hún með NTNUI, einnig í Noregi, en á sínum yngri árum var hún hjá Þrótti í Neskaupstað. Eyrún leikur sem miðjumaður og hefur verið viðloðandi norska landsliðið. Það verður því fróðlegt að fylgjast með henni og öflugu liði Viking.
Lejla Sara Hadziredzepovic – Dayton University (USA)

Flestir íslenskir blakarar leita til Norðurlandanna en það eru alltaf einhverjir sem reyna fyrir sér í Bandaríkjunum. Ein þeirra er Lejla Sara sem hefur leikið í háskólaboltanum vestanhafs og hefur nú sitt annað tímabil þar í landi. Áður var Lejla hjá HK og Aftureldingu en hefur þrátt fyrir ungan aldur einnig reynt fyrir sér í Sviss og Bosníu. Lejla kemur inn í tímabilið á miklu flugi eftir að hafa fagnað góðu gengi með íslenska landsliðinu í sumar. Áður lék hún með Clemson en á komandi tímabili mun hún leika með Dayton University í Ohio. Leikjaplanið í Bandaríkjunum er ansi þétt en fyrstu leikir liðsins verða strax í lok ágúst.