Komið að úrslitahelginni á HM karla

Komið er að lokakaflanum á HM karla en um helgina fer fram Final 4 á mótinu. Pólland, Ítalía, Tékkland og Búlgaría slást um heimsmeistaratitilinn að þessu sinni.

Dagskráin hefur verið þétt undanfarnar vikur en nú eru aðeins fjórir leikir eftir á HM karla. Leikið verður til undanúrslita á laugardag en á sunnudag hefst dagurinn á bronsleik og lýkur með úrslitaleiknum sjálfum. Undanúrslitaleikirnir hefjast snemma en Tékkland og Búlgaría mætast kl. 6:30 á laugardagsmorgun. Í kjölfarið mætast Pólland og Ítalía kl. 10:30.

Tékkland

Eitt þeirra liða sem hefur komið mest á óvart á mótinu er Tékkland. Besti árangur þeirra á HM var 10. sæti (2010) en þeir hafa ekki verið hátt skrifaðir síðustu ár. Í dag standa þeir í 17. sæti heimslistans en hafa klifið nokkur sæti með góðum árangri á HM til þessa. Tékkland kom upp úr erfiðum riðli þar sem að Brasilía og Kína urðu eftir en unnu einnig Túnis og Íran á leið sinni í undanúrslitin. Patrik Indra er díó liðsins og hefur verið mjög atkvæðamikill. Einnig er vert að fylgjast með kantsmössurunum Lukas Vasina og Jan Galabov.

Búlgaría

Hin mikla blakþjóð Búlgaríu hefur lengi átt öflug landslið en karlarnir hafa aldrei orðið heimsmeistarar. Þeir eiga silfurverðlaun frá 1970 en hafa aldrei náð í þann stóra. Liðið er í dag í 9. sæti heimslistans en hafa verið á hraðri uppleið með nokkuð ungan og óreyndan hóp. Helstu stjörnur liðsins eru Nikolov bræðurnir, Alex og Simeon, en þeir hafa báðir slegið í gegn í bandaríska háskólaboltanum. Búlgaría vann sinn riðil en þar voru meðal annars Þýskaland og Slóvenía. Í útsláttarkeppninni mættu þeir svo Portúgal og Bandaríkjunum en búlgarska liðið verður að teljast sigurstranglegra gegn sprækum Tékkum.

Pólland

Pólverjar eru af mörgum taldir líklegastir til sigurs á mótinu og hafa verið gríðarlega sterkir. Þeir eru ríkjandi Evrópumeistarar, unnu silfur á HM 2022 og sitja í efsta sæti heimslistans. Pólska liðið vann alla leiki sína í riðlinum og sló út Kanada og Tyrkland í útsláttarkeppninni. Hópurinn hjá Póllandi er breiður en mest ber á Wilfredo Leon og Bartosz Kurek. Báðir eru þeir gríðarlega kraftmiklir en einnig reynslumiklir á stóra sviðinu. Pólland varð heimsmeistari 2014 og 2018 en þurfa nú að vinna öflugt lið Ítalíu til að endurheimta titilinn.

Ítalía

Ítalir eru ríkjandi heimsmeistarar en þeir unnu sinn fjórða heimsmeistaratitil árið 2022. Ítalska liðið situr í 2. sæti heimslistans og hefur verið eitt stöðugasta lið síðustu ára. Þeir misstu Daniele Lavia í meiðsli fyrir mót en virðast hafa fundið taktinn eftir brösuga byrjun á mótinu. Ítalía tapaði fyrir Belgíu í riðlinum en komst þó áfram og hefndi fyrir það í 8-liða úrslitum þegar Ítalía og Belgía mættust öðru sinni. Þar á undan hafði Ítalía unnið Argentínu í 16-liða úrslitunum. Sterkasti leikmaður liðsins er Alessandro Michieletto en uppspilarinn Simone Giannelli er einnig gríðarlega mikilvægur.

Undanúrslit – Laugardagur 27. september

Tékkland – Búlgaría 6:30

Pólland – Ítalía 10:30