Undanúrslit í Kjörísbikar karla fara fram í dag en fyrri leikur dagsins er viðureign Völsungs og Aftureldingar og hefst leikurinn kl 17:00 en leikið er að venju í Digranesi.
Við hitum upp með smá samantekt um liðin
Völsungur
Völsungur lauk keppni í Unbrokendeild karla í 7.sæti með 11 stig af 63 mögulegum. Þá hafði liðið betur í 4 leikjum af 11.
Stigahæsti leikmaður Völsungs í deildarkeppninni var Juan Manuel Balnquer Sebastian með 336 stig.
Gengi Völsungs í bikarkeppninni:
Völsungur hefur aldrei orðið bikarmeistari í karlaflokki
Leið Völsungs í undanúrslit:
Völsungur mætti 3.deildar liði KA Splæsir í 8 liða úrslitum og hafði þar betur 3-1 (24-26, 25-18, 25-14, 25-14)
Afturelding
Afturelding var lengi vel í baráttu um 1.sæti Unbrokendeildar karla í vetur en lauk keppni í 3.sæti með 45 stig af 63 mögulegum. Þá hafði liðið betur í 16 af 21 leik.
Stigahæsti leikmaður Aftureldingar í deildarkeppninni var Hafsteinn Már Sigurðsson með 319 stig.
Gengi Aftureldingar í bikarkeppninni:
Afturelding hefur einu sinni orðið bikarmeistari en það var árið 217
Leið Aftureldingar í undanúrslit:
Afturelding mætti Þróttu Reykjavík í 8 liða úrslitum og hafði þar betur 3-1 (20-25, 25-22, 25-20, 25-16)
Innbyrðis viðureignir liðanna (síðustu 3 leikir):
- 13.12.26 Völsungur – Afturelding 0-3 (14-25, 16-25, 15-25)
- 09.11.25 Afturelding – Völsungur 3-0 (25-20, 25-16, 25-17)
- 08.11.25 Afturelding – Völsungur 3-1 (22-25, 25-16, 29-27, 25-16)
Volleyball.is hvetur lesendur til að skella sér í Digranesið en miðasölu má nálgast hér.