Karla- og kvennalandslið Íslands halda leik áfram um helgina þegar næsta umferð European League fer fram. Í þetta skiptið heldur karlaliðið til Grikklands en kvennaliðið til Slóveníu. Bæði lið spila leiki sína á föstudegi og laugardegi.
A-landslið karla – Aþena (Grikkland)
Fyrsti andstæðingur Íslands verður heimalið Grikklands. Þeir grísku sitja í 27. sæti heimslista FIVB en þeir unnu annan af tveimur leikjum sínum um síðustu helgi. Liðið vann sigur gegn Azerbaijan en tapaði í oddahrinu gegn Svíþjóð. Seinni leikurinn verður gegn Norður-Makedóníu sem ætti að vera nær íslenska liðinu að getustigi. Þeir eru engu að síður sterkir, sitja í 48. sæti heimslistans og hafa líkt og Grikkland unnið einn leik það sem af er keppni. Þeir unnu Lúxemborg í hörkuleik en töpuðu gegn Hollandi.
A-landslið kvenna – Ljubljana (Slóvenía)
Kvennalandsliðið mætir sterku liði Slóveníu í fyrsta leik en Slóvenar eru í 19. sæti heimslistans. Fatoumatta Sillah er stjarna liðsins en hún leikur með stórliði Conegliano á Ítalíu. Slóvenía vann fyrstu tvo leiki sína auðveldlega gegn Svartfjallalandi og Georgíu. Þá mætir íslenska liðið Lettlandi í seinni leik sínum en Lettland situr í 63. sæti heimslistans. Daniele Capriotti, fyrrum landsliðsþjálfari Íslands, er þjálfari liðsins sem hefur verið á uppleið síðustu ár. Lettar hafa tapað báðum leikjum sínum til þessa en þar mættu þær Rúmeníu og Ísrael.
Leikir liðanna verða sýndir á Livey og EuroVolley TV en hér fyrir neðan má sjá dagskrá helgarinnar:
Föstudagur 12. júní
Ísland – Slóvenía 16:00 (KVK)
Ísland – Grikkland 17:00 (KK)
Laugardagur 13. júní
Ísland – Lettland 16:00 (KVK)
Ísland – Norður-Makedónía 16:00 (KK)