KA tryggði 2. sætið karlamegin

Mynd: Sigga Þrúða

Lokahelgin í Unbroken deild karla er í fullum gangi og fóru þrír leikir fram í dag. Leikið var á Húsavík, í Neskaupstað og í Kópavogi.

Fyrsti leikur dagsins fór fram í GPG höllinni á Húsavík þar sem Völsungur tók á móti Vestra. Liðin hafa bæði lent í erfiðleikum í deildinni síðustu vikur og var áhugavert að sjá liðin mætast í síðustu deildarleikjum sínum þetta tímabilið. Ekki var um mikla spennu að ræða í fyrstu hrinu en þar vann Völsungur auðveldan sigur. Töluvert meira jafnræði var með liðunum í annarri hrinu en Vestri var skrefinu á undan. Gestirnir frá Ísafirði héldu út og jöfnuðu leikinn 1-1.

Aftur var jafnt á öllum tölum í þriðju hrinu og aftur voru það Ísfirðingar sem reyndust hlutskarpari. Vestri leiddi þar með 1-2 eftir tvær æsispennandi hrinur. Spennan hélt áfram í fjórðu hrinu en góður lokakafli hjá heimamönnum kom leiknum alla leið í oddahrinu. Sú hrina einkenndist af áhlaupum en Völsungur gerði betur og vann nokkuð sannfærandi. Völsungur vann leikinn þar með 3-2 og náði í sinn fjórða sigur á tímabilinu.

Í Neskaupstað mættust Þróttur Fjarðabyggð og Afturelding en Mosfellingar eru í harðri baráttu við KA um 2. sæti deildarinnar. Þróttarar eru komnir upp fyrir Vestra í 5. sæti deildarinnar en eiga þó ekki möguleika á sæti í úrslitakeppninni. Þróttur Fjarðabyggð byrjaði vel og vann fyrstu hrinu óvænt. Afturelding var ekki lengi að komast á skrið og vann þægilega sigur í annarri hrinu. Öllu meiri spenna var í þriðju hrinu en þar unnu heimamenn naumlega og tóku forystuna á ný.

Aftur snerist dæmið við á milli hrina og Afturelding vann sannfærandi sigur í fjórðu hrinu. Afturelding hélt dampi og vann oddahrinuna sem tryggði 2 stig af þremur mögulegum. Það dugði þó ekki til þar sem að KA vann sinn leik í Kópavogi.

Lokaleikur laugardags fór fram í Digranesi þar sem HK tók á móti KA. Eins og áður sagði voru KA og Afturelding í baráttu um 2. sæti Unbroken deildar karla en liði KA dugði að vinna að minnsta kosti annan leik helgarinnar og fá 3 stig úr leikjunum tveimur. Fyrsta hrina leiksins var algjör maraþonhrina sem HK vann að lokum 34-32. Önnur hrina leiksins var hins vegar mjög ójöfn og jafnaði KA leikinn 1-1 með auðveldum sigri.

Þriðja hrinan var jöfn og leiddi HK 23-21 undir lokin. KA átti mjög góðan lokakafla og náði að knýja fram sigur eftir upphækkun. Fjórða hrinan varð svo einstefna þar sem að KA jók forskot sitt smám saman allt frá upphafi hrinu. KA vann því 3-1 og tryggði sér 2. sætið endanlega.

Þar með er ljóst að í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn mætast Hamar (1. sæti) og Þróttur Reykjavík (4. sæti) annars vegar en hins vegar KA (2. sæti) og Afturelding (3. sæti).

Á morgun verður endurtekning á leikjum laugardagsins. Völsungur mætir Vestra kl. 13:00 og Þróttur Fjarðabyggð tekur á móti Aftureldingu á sama tíma. Lokaleikur deildarkeppninnar fer svo fram kl. 16:00 þegar HK mætir KA.

Úrslit dagsins í Unbroken deild karla – Laugardagur 7. mars

Völsungur 3-2 Vestri (25-14, 22-25, 27-29, 25-20, 15-9)

Þróttur Fjarðabyggð 2-3 Afturelding (25-21, 19-25, 26-24, 21-25, 11-15). Raul Garcia Asensio skoraði 28 stig fyrir Þrótt Fjarðabyggð en hjá Aftureldingu voru Pedro Nascimento og Hafsteinn Már Sigurðsson með 15 stig hvor.

HK 1-3 KA (34-32, 19-25, 24-26, 15-25). Michal Jan Potempa var stigahæstur hjá HK með 14 stig en Miguel Mateo Castrillo skoraði 21 stig hjá KA.