KA tapaði sínu fyrsta stigi í Laugardalshöll

Mynd: Sigga Þrúða

Unbroken deild kvenna hélt áfram í dag með tveimur leikjum. Þróttur Fjarðabyggð tók á móti Völsungi í Neskaupstað og KA sótti Þrótt/BFH heim í Laugardalshöll.

Fyrri leikur dagsins fór fram fyrir austan en Þróttur F og Völsungur voru í tveimur neðstu sætum deildarinnar. Þrátt fyrir að hafa aðeins unnið eina hrinu það sem af er tímabili byrjaði Þróttur leikinn afar vel. Þær náðu fimm stiga forskoti strax í upphafi fyrstu hrinu en Völsungur jafnaði leikinn strax í kjölfarið. Þróttur leiddi 15-14 um miðja hrinuna þegar Völsungur tók öll völd á vellinum. Húsvíkingar áttu magnaðan lokakafla og unnu hrinuna 16-25.

Í næstu tveimur hrinum höfðu Völsungar góð tök á leiknum. Gestirnir leiddu nánast allan tímann í annarri og þriðju hrinu og unnu sannfærandi sigra. Leikurinn vannst þar með 0-3 og Völsungur sótti þrjú stig austur. Hörð barátta er um 3.-5. sæti deildarinnar en þar sitja Afturelding, Þróttur/BFH og Völsungur.

Í Laugardalshöll mættust Þróttur/BFH og KA en fram til þessa var KA enn með fullt hús stiga eftir 6 leiki. Þróttur/BFH var hins vegar eins og áður sagði í harðri baráttu um sæti 3-5 í deildinni. Mikill getumunur var á liðunum í fyrstu hrinu sem KA vann afskaplega auðveldlega, 8-25. Eftir það jafnaðist leikurinn út og var önnur hrina æsispennandi. Að lokum vann Þróttur/BFH nauman sigur og jafnaði leikinn 1-1.

Þróttur/BFH hélt áfram að spila vel og vann þriðju hrinu leiksins án nokkurra vandræða. Leikurinn var ansi sveiflukenndur og ekki dró úr því eftir þriðju hrinuna. KA vann þá fjórðu nefnilega afar sannfærandi og tryggði sér oddahrinu. Þar vann KA 4-15 og bjargaði því sigri eftir jafnan leik framan af. KA er því ekki lengur með fullt hús stiga en er nú með 20 stig eftir 7 leiki. HK er á toppnum með 21 stig eftir jafn marga leiki. Þróttur/BFH jafnar hins vegar Aftureldingu að stigum í 3.-4. sæti.

Úrslit dagsins í Unbroken deild kvenna – 8. nóvember

Þróttur F 0-3 Völsungur (16-25, 17-25, 20-25)

Þróttur R / BFH 2-3 KA (8-25, 27-25, 25-20, 13-25, 4-15)

Keppni heldur áfram á morgun þegar Þróttur Fjarðabyggð og Völsungur mætast aftur. Sá leikur hefst klukkan 12:00.