Unbroken deild kvenna hélt áfram í kvöld þegar Þróttur Reykjavík/BFH mætti KA í Laugardalshöll. KA eltir HK af harðfylgi á toppi deildarinnar á meðan að Þróttur R/BFH er í mikilli baráttu um sæti í úrslitakeppninni.
Jafnræði var með liðunum í upphafi leiksins í kvöld en KA náði fljótlega yfirhöndinni. Heimakonur náðu hins vegar að snúa dæminu sér í vil og unnu fyrstu hrinu 25-22. KA tók strax við sér í annarri hrinunni og náði 0-8 forystu. Þeirri forystu hélt liðið nokkurn veginn alla hrinuna og vann auðveldan 15-25 sigur.
Leikurinn jafnaðist aftur út eftir burstið í annarri hrinu en aftur var KA skrefi á undan. Gestirnir reyndust sterkari þegar leið á hrinuna og unnu 19-25. KA hélt áfram að þjarma að Þrótturum í fjórðu hrinunni en heimakonur gerðu þeim afar erfitt fyrir. Það var ekki fyrr en undir blálok hrinunnar sem KA skoraði 6 stig í röð og sneri stöðunni úr 21-19 í 21-25. KA vann leikinn þar með 1-3 og er enn með í kapphlaupinu um efsta sæti Unbroken deildar kvenna.
Þróttur R/BFH er enn í harðri baráttu við Völsung og Aftureldingu en Mosfellingar mæta einmitt KA á morgun. Leikurinn fer fram að Varmá og hefst klukkan 15:30. Þá mætast Völsungur og HK einnig klukkan 14:00.