KA og Vestri með sigra í Unbroken deild karla

Mynd: Sigga Þrúða

Unbroken deild karla fór aftur af stað í dag eftir jólafrí. Tveir leikir fóru fram en annar þeirra var toppslagur KA og Þróttar Reykjavíkur fyrir norðan.

Fyrri leikur dagsins fór fram í Digranesi þar sem HK og Vestri mættust. HK er í neðsta sæti deildarinnar en hefur átt ágætis leiki þrátt fyrir dræma stigasöfnun. Vestramenn eru um miðja deild en mættu til leiks í dag án flestra erlendu leikmanna sinna. Þar má meðal annars nefna Adria De los Santos Capdevila sem er stigahæsti leikmaður liðsins það sem af er tímabili. Leikurinn var þó ansi jafn til að byrja með og vann HK naumlega í fyrstu hrinu. Heimamenn í HK völtuðu svo yfir gestina í annarri hrinu og virtust Ísfirðingar vera að missa dampinn.

Þriðja hrina var hnífjöfn en Vestri lék betur undir lokin og knúði fram fjórðu hrinu. Þar snerist dæmið við frá fyrri hluta leiksins og Vestri vann auðveldan sigur. Þar með fór leikurinn alla leið í oddahrinu þar sem að Vestri vann og tryggði sér tvö stig. HK verður að sætta sig við 1 stig eftir að hafa verið í dauðafæri að klára leikinn í þremur hrinum.

Á Akureyri mætti KA liði Þróttar Reykjavíkur í toppslag deildarinnar. Þessi tvö lið, ásamt Aftureldingu og Hamri, berjast um efstu sætin í afar jafnri toppbaráttu. Þróttur byrjaði leikinn vel og leiddi allt þar til um miðbik fyrstu hrinu. Þá sigu norðanmenn fram úr og unnu að lokum nokkuð sannfærandi sigur. Ekki batnaði það fyrir gestina þegar KA náði 4-0 forystu í upphafi annarrar hrinu. Þróttarar náðu sér ekki á strik og KA fór með auðveldan sigur og leiddi þar með 2-0 á heimavelli.

Meira jafnræði var með liðunum í þriðju hrinunni en hvorugt lið náði að byggja upp mikla forystu. Úrslitin réðust undir lok hrinunnar en eftir að jafnt var 22-22 vann Þróttur 23-25 sigur og hélt lífi í leiknum. Fjórða hrinan var jöfn og spennandi allt fram að miðbiki hrinunnar en þá tók KA yfir leikinn. Heimamenn náðu mest 6 stiga forystu og tryggðu sér 3-1 sigur.

Úrslit dagsins í Unbroken deild karla – Sunnudagur 4. janúar

HK 2-3 Vestri (25-22, 25-15, 22-25, 16-25, 11-15). Riccardo Meucci skoraði 18 stig fyrir HK og Michal Potempa bætti við 13 stigum. Hjá Vestra voru Benedikt Stefánsson, Sverrir Bjarki Svavarsson og Hákon Ari Heimisson með 14 stig hver.

KA 3-1 Þróttur Reykjavík (25-20, 25-15, 23-25, 25-21)

Með sigri dagsins fer KA í efsta sæti deildarinnar, að minnsta kosti fram á miðvikudag þegar næstu leikir fara fram. Þróttur Reykjavík er stigi á eftir KA en efstu liðin hafa ýmist leikið 12, 13 eða 14 leiki hingað til svo stigafjöldinn einn og sér segir ekki alla söguna. Vestri er nú með 18 stig en er ekki í raunhæfri baráttu um efstu fjögur sætin. Þeir hafa þó 10 stiga forskot á næsta lið en Þróttur Fjarðabyggð er með 8 stig í 6. sæti.

Annar stórleikur fer fram strax á miðvikudagskvöld en þá mætast Þróttur Reykjavík og Hamar í Laugardalshöll. Eins og áður sagði eru bæði lið í toppbaráttunni og þar verða dýrmæt stig í boði fyrir bæði lið.