KA og Afturelding með mikilvæga sigra í Unbrokendeild kvenna

Mynd: Blakdeild Aftureldingar

Tveir leikir fóru fram í Unbrokendeild kvenna í kvöld þegar toppliðin HK og KA áttu bæði leik.

Fyrri leikur kvöldsins var viðureign Þróttar Fjarðarbyggðar og KA en KA vann þann leik nokkuð örugglega 3-0.

Eftir jafna byrjun í fyrstu hrinu þá tók KA öll völd og vann fyrstu hrinu leiksins 25-14. Þá næstu vann KA með enn meiri mun 25-13, KA gaf ekkert eftir í þriðju hrinu sem endaði einnig með yfirburðar sigri 25-12.

Þróttur Fjarðarbyggð – KA 0-3 (14-25, 13-25, 12-25)

KA nálgast þá HK en KA situr í 2.sæti með 43 stig. Þróttur Fjarðarbyggð er enn í 6. og neðsta sæti með 1 stig.

Stigahæst í leiknum var Lucia Martin Carrasco leikmaður KA með 17 stig. Stigahæst í liði Þróttar Fjarðarbyggðar var Heiða Elísabet Gunnarsdóttir með 9 stig.

Mynd: Sigga Þrúða

Seinni leikur kvöldsins fór fram í Digranesi þar sem topplið HK tók á móti Aftureldingu. Fyrirfram var búist við hörkuleik en HK þarf öll þau stig sem eru í boði til að halda KA frá sér á meðan Afturelding má ekkert gefa eftir ætli þær sér að enda í 4.sæti og komast í úrslitakeppnina.

Leikurinn fór vel af stað en liðin skiptust á stigum til að byrja með. HK var búið að endurheimta Elísabetu Einarsdóttur úr meiðslum og hjá Aftureldingu var Telma Dögg Grétarsdóttir sömuleiðis mætt aftur eftir meiðsli. Hjá HK er Matthildur Einarsdóttir enn að jafna sig eftir meiðsli og tók lítið þátt í kvöld, þá er Helena Einarsdóttir ekki enn komin í gang.

Um miðja fyrstu hrinu tók Afturelding öll völd og áttu heimastúlkur fá svör við sterku liði Aftureldingar. Afturelding vann fyrstu hrinuna 25-19. Jafnræði var með liðunum framan af í annarri hrinu en aftur voru það Afturelding sem voru sterkari á loka kaflanum og unnu þær aðra hrinu 25-18.

Afturelding virtist vera með öll völd í þriðju hrinu og voru þær með 7 stiga forystu undir miðja hrinu. HK sýndi hinsvegar mikinn karakter og náðu að jafna 22-22 og virtust þær ætla að stela hrinunni. HK vantaði bara eitt stig þegar þær komust í 24-22 en gífurleg barátta Aftureldingar skilaði þeim sigri 26-24 og unnu þær leikinn því 3-0.

HK – Afturelding 0-3 (19-25, 18-25, 24-26)

Afturelding tyllir sér því í 4.sætið með 19 stig, stigi meira en Þróttur R/BFH sem eru með 18 stig og eiga leik til góða. HK tapar hinsvegar dýrmætum stigum og munar nú aðeins einu stigi á HK og KA sem sitja í efstu tveimur sætunum.