KA Meistari Meistaranna í kvennaflokki

KA liðið þegar það varð Íslandmeistari fyrr á árinu

KA varð í dag Meistari meistaranna í kvennaflokki en Meistarakeppni BLÍ fer fram á Akureyri.

KA og Völsungur mættust í Meistarakeppni BLÍ í dag en leikið var í KA heimilinu.

Leikið er eftir ýmsum nýjum reglum og reglubreytingum í vetur og m.a. sú breyting að inná vellinum verða að vera að lágmarki 2 íslenskir leikmenn hverju sinni.

Byrjunarlið KA: Auður, Jóna Margrét, Julia Bonet, Lovísa Rut (fyrirliði), Lucia Martin, Sóldís Júlía.
Byrjunarlið Völsungs: Inga Björg, Tamara, Jóna Björk, Heiðdís Edda (fyrirliði), Jenný Birna, Margrét

KA byrjaði leikinn af miklum krafti og náðu fljótt góðu forskoti í fyrstu hrinu. Gestirnir frá Húsavík bitu hinsvegar frá sér og náðu að minnka muninn, það reyndist hinsvegar of seint og sigraði KA fyrstu hrinu 25-22. Yfirburðir KA liðsins voru miklir í annarri hrinu sem endaði með öruggum sigri 25-12. Yfirburðir KA liðsins héldu áfram í þriðju hrinu sem endaði með sigri KA 25-16 og KA vinnur því leikinn 3-0.

KA eru því Meistarar meistaranna í kvennaflokki árið 2025!