KA komnir yfir í einvíginu gegn Þrótti Reykjavík

Mynd: Sigga Þrúða

KA og Þróttur Reykjavík mættust í dag í fyrsta leik í úrslitum um íslandsmeistaratitil karla.

KA hafði betur í  kaflaskiptum leik 3-0 (25-17, 25-23, 25-22) en KA liðið má teljast stálheppið með 3-0 sigur því að Þróttur Reykjavík hefði hæglega getað unnið aðra og þriðju hrinu. Frábær leikur hjá Mateusz Jeleniewski frelsingja KA gerði gæfumun en hann átti frábæran leik bæði í móttöku og vörn.

Hjá Þrótti Reykjavík var Kacper Kedra öflugastur en hann var stigahæstur í leiknum með 17 stig. Þróttur Reykjavík voru klaufar að missa frá sér aðra og þriðju hrinu en þeir voru lengi af stað í leiknum. Miklar hrókeringar á leikskipulagi Þróttar getur komið þeim í vandræði en liðið hefur verið með heldur fjölbreyttar uppstillingar í vetur.

KA liðið sýnir hinsvegar mikinn stöðuleika og virðast þeir ætla að toppa á réttum tímapunkti en KA hafa verið að spila feikna vel upp á síðkastið. KA eru komnir í góða stöðu í einvíginu en vinna þarf 3 leiki til að verða íslandsmeistari.

Næsti leikur liðanna fer fram í Laugardalshöll, sunnudaginn 19 apríl kl 14:00.