KA hafði betur í grannaslag fyrir norðan

Mynd: Sigga Þrúða

Einn leikur fór fram í Unbroken deild kvenna í kvöld þegar Völsungur tók á móti KA í grannaslag fyrir norðan.

KA var fyrir leikinn í dag með 25 stig á toppi Unbroken deildar kvenna ásamt HK. Völsungur var hinsvegar í 3.sæti með 14 stig.

KA endurheimti Juliu Bonet Carreras sem lék ekki með liðinu gegn Þrótti Fjarðarbyggð um síðustu helgi vegna veikinda. KA byrjaði leikinn af miklum krafti og voru komnar í 6-1 þegar Völsungur tekur sitt fyrsta leikhlé. Völsungur hafði betur gegn HK um síðustu helgi en í kvöld náðu þær ekki að sýna sama kraft en KA hafði ágætis tök í leiknum í kvöld. Fyrstu hrinu unnu KA 25-18 og ljóst að erfitt verkefni biði Húsvíkinga. KA kom af sama krafti inní aðra hrinu og náðu strax góðu forskoti. Þrátt fyrir góða baráttu Völsungs náðu þær ekki að jafna leikinn og endaði KA á að vinna aðra hrinu 25-19.

Þriðja hrina var heldur jafnari en Völsungur náði að halda vel í við KA liðið framan af. Um miðja hrinu sýndu KA stelpur hinsvegar styrk sinn og kláraðu hrinuna að lokum 25-17 og leikinn þar með 3-0.

KA er því komið með þriggja stiga forskot á toppi deildarinnar með 28 stig eftir 10 leiki.