KA fór létt með Þrótt Fjarðabyggð

Mynd: Blakdeild KA

KA tók á móti Þrótti Fjarðabyggð í eina leik dagsins í Unbroken deild kvenna. Við öruggum sigri KA var að búast fyrir leik en Þróttarar höfðu þó strítt efri liðum deildarinnar að undanförnu.

KA er í 2. sætinu, skammt á eftir HK en langt á undan næstu liðum. Þróttur F er á botninum en liðið er langneðst í kvennadeildinni. Leikurinn byrjaði vel fyrir heimakonur í KA sem leiddu fljótt með tveggja stafa tölu. Þær unnu fyrstu hrinu auðveldlega en Þróttur F gerði þeim erfiðara fyrir í annarri hrinunni. Þar var jafnt á flestum tölum út hrinuna og en tveir góðir kaflar í seinni hluta hrinu tryggðu KA sigurinn.

Þriðja hrina fór afar vel af stað fyrir heimakonur í KA. Þær höfðu þægilegt forskot frá upphafi hrinu og stungu svo af undir lokin. KA vann auðveldlega og tryggði 3-0 sigur. KA er með 34 stig í 2. sæti deildarinnar en HK trónir á toppnum með 42 stig. KA á þó einn leik til góða á HK. Þróttur Fjarðabyggð er enn með 1 stig á botninum og bíður enn eftir fyrsta sigrinum á tímabilinu.

Keppni heldur áfram á miðvikudag þegar Afturelding og Þróttur R/BFH mætast í Mosfellsbæ. Þá fara þrír leikir fram næstu helgi.