Jón Ólafur Valdimarsson dæmdi í Noregi

Jón Ólafur Valdimarsson alþjóðlegur dómari var við störf í Noregi í vikunni þar sem hann dæmdi tvo leiki í Challenge Cup kvenna.

Jón Ólafur dæmdi viðureign Øksyl MYRE frá Noregi og KHG KAPOSVÁRI NRC frá Ungverjalandi í 32. liða úrslitum í Challenge Cup kvenna en báðir leikirnir fóru fram í bænum Myre í Noregi en Myre er staðsett norðanlega í Noregi og því langt ferðalag sem beið Jón Ólafs.

Jón Ólafur var aðstoðardómari í fyrri viðureign liðanna sem endaði með sigri KAPOSVÁRI 3-0 og svo aðstoðardómari þegar liðin mættust degi seinna en sá leikur endaði einnig 3-0 fyrir Ungverska liðinu sem er því komið áfram í 8 liða úrslit keppninnar.