Fjörið hélt áfram á HM karla þegar önnur umferð riðlakeppninnar hófst í dag. E-riðill var áfram spennuþrunginn en nú var komið að Slóveníu og Búlgaríu að eigast við.
Fyrstu leikir keppnisdagsins voru nokkuð ójafnir þar sem að Kúba, Tyrkland og Þýskaland unnu örugga sigra. Tyrkir tryggðu sér sæti í 16-liða úrslitum en Kúba og Þýskaland þurfa að ná í góð úrslit í lokaleik sínum til að komast áfram. Sömuleiðis eiga Kólumbía, Líbía og Síle ekki lengur möguleika á því að leika í 16-liða úrslitunum.
Japan hefur átt erfitt uppdráttar í fyrstu leikjum sínum en í morgun töpuðu þeir 0-3 gegn Kanada í jöfnum leik. Það þýðir að þeir eigi ekki lengur möguleika á að komast í útsláttarkeppnina. Kanada fer þangað með Tyrklandi en Japan og Líbía sitja eftir með sárt ennið.
Annar stórleikur var á dagskrá þegar Slóvenía mætti Búlgaríu. Bæði lið unnu fyrsta leik sinn og gátu tryggt sig áfram með sigri í dag. Eftir maraþonleik vann Búlgaría 2-3 sigur sem þýðir að Slóvenía og Þýskaland mætast í úrslitaleik á miðvikudag. Sigurvegari þar fylgir Búlgaríu í 16-liða úrslitin.

Holland vann Rúmeníu í hnífjöfnum leik en þó að úrslitin hafi verið 3-0 unnust allar hrinur leiksins með minnsta mun. Hollendingar fara því upp úr riðlinum en Rúmenía og Katar sitja eftir. Katar tapaði einmitt fyrir Pólverjum sem eru einnig komnir í 16-liða úrslit.
Bandaríkin unnu að lokum sannfærandi 3-0 sigur gegn Portúgal. Bandaríkjamenn fara því áfram úr riðlinum en Kúba og Portúgal berjast um seinni farmiðann í 16-liða úrslitin. Portúgalir verða að teljast líklegri en þeir eiga eftir leik við slakt lið Kólumbíu. Kúba þarf hins vegar að vinna gegn Bandaríkjunum og treysta á að Kólumbía taki stig af Portúgal.
Kúba 3-0 Kólumbía (25-22, 25-21, 25-20). Osniel Mergarejo skoraði 14 stig fyrir Kúbu en Amaranto var langstigahæstur Kólumbíumanna með 18 stig.
Tyrkland 3-1 Líbía (25-18, 23-25, 25-14, 25-16). Bedirhan Bülbül og Efe Mandiraci skoruðu 16 stig hvor fyrir Tyrkland en Ahmed Ikhbayri skoraði 19 stig fyrir Líbíu.
Þýskaland 3-0 Síle (25-17, 25-23, 25-21). György Grozer var stigahæstur Þjóðverja með 19 stig en hjá Síle var Vicente Parraguirre stigahæstur með 14 stig.

Japan 0-3 Kanada (20-25, 23-25, 22-25). Ran Takahashi skoraði 11 stig og Kento Miyaura bætti við 10 stigum fyrir Japan. Sharone Vernon-Evans skoraði 14 stig fyrir Kanada og næstur kom Nicholas Hoag með 13 stig.
Slóvenía 2-3 Búlgaría (19-25, 14-25, 25-18, 25-23, 13-15). Toncek Stern var stigahæstur hjá Slóveníu með 20 stig en hjá Búlgaríu átti Alex Nikolov annan stórleik og skoraði 26 stig. Hann hefur því skorað 54 stig í fyrstu tveimur leikjum sínum.
Holland 3-0 Rúmenía (25-23, 26-24, 26-24). Michiel Ahyi skoraði 18 stig fyrir Holland en Florian Bartha skoraði 13 stig fyrir Rúmeníu.
Bandaríkin 3-0 Portúgal (25-19, 25-22, 25-17). Gabriel Garcia og Jordan Ewert skoruðu 12 stig hvor fyrir Bandaríkin. Lourenço Martins var stigahæstur Portúgala en hann var sömuleiðis með 12 stig.
Pólland 3-0 Katar (25-21, 25-14, 25-19). Kamil Semeniuk skoraði 13 stig fyrir Pólland en í liði Katar voru þeir Papemaguette Diagne og Nikola Vasic báðir með 8 stig.

Á morgun klárast önnur umferð riðlakeppninnar en þar geta einnig mörg lið tryggt sér farseðilinn í 16-liða úrslit mótsins. Brasilía og Tékkland mætast í fyrsta leik dagsins þar sem að sigurvegarinn tryggir sig áfram í útsláttarkeppnina. Spennandi leikir fara fram um hádegið þar sem að Serbía og Kína mætast en einnig eigast Ítalía og Belgía við.
Leikir morgundagsins – Þriðjudagur 16. september
- Brasilía – Tékkland 02:00
- Argentína – Suður-Kórea 02:30
- Íran – Túnis 05:30
- Úkraína – Alsír 06:00
- Filippseyjar – Egyptaland 09:30
- Frakkland – Finnland 10:00
- Serbía – Kína 13:00
- Ítalía – Belgía 13:30