Ítalskur slagur í úrslitaleik Heimsmeistaramóts félagsliða kvenna

Í dag fer fram úrslitaleikur á Heimsmeistaramóti félagsliða í kvennaflokki en þar mætast ítölsku liðin Savino Del Bene Scandicci og Prosecco DOC Imoco Conegliano.

Savino Del Bene Scandicci hafði betur gegn brasilíska liðinu Dentil Praia Clube í undanúrslitum 3-0 (25-23, 26-24, 25-19). Stigahæst í leiknum var hin 22 ára Ekaterina Antropova leikmaður Scandicci með 20 stig. Stigahæst í liði Dentil Praia var hin 24 ára gamla Morgahn Fingall með 17 stig.

Prosecco DOC Imoco Conegliano mætti svo brasilíska liðinu Osasco São Cristóvão Saúde og hafði betur 3-1 (21-25, 25-23, 25-16, 25-16). Stigahæst í leiknum var Gabriela Braga Guimaraes (Gabi) leikmaður Imoco Volley með 18 stig. Stigahæst í liði Osasco var Caitlin Baird með 17 stig.

Úrslitaleikurinn sjálfur fer fram kl 19:30 en þar mætast eins og áður hefur komið fram, ítölsku liðin Scandicci og Imoco Volley en liðin eru sem stendur í efstu tveimur sætum ítölsku deildarinnar, Imoco taplausar á toppnum en Scandicci 6 stigum á eftir.

Imoco Volley er eitt sigursælasta lið í Evrópsku kvennablaki seinustu ár en auk þess að vera ríkjandi Ítalíumeistarar þá eru þær einnig ríkjandi heims og evrópumeistarar. Í liði Imoco Volley eru nokkrar af bestu leikmönnum heims og má þar helst nefna:

Gabriela Guimarães, Gabi (Brasilía)
Zhu Ting (Kína)
Isabelle Haak (Svíþjóð)
Joanna Wołosz (Pólland)
Monica De Gennaro (Ítalía)

Imoco Volley hafa safnað vel af gullverðlaunum síðustu ár

 

Úrslitaleikurinn sjálfur fer fram kl 19:30 en hann má sjá á VolleyballWorldTV