Ítalía VNL meistari kvenna 2025, Pólland tók bronsið

Ítalía varð í dag VNL meistari kvenna árið 2025 eftir sigur á Brasilíu í úrslitaleik.

Ítalía og Brasilía mættust í dag í úrslitaleik VNL kvenna árið 2025 en leikurinn fór fram í Lodz, Póllandi. Ítalía hafði betur í æsispennandi leik 3-1 (2225, 2518, 2522, 2522).

Stigahæst í liði Ítalíu var Ekaterina Antropova með 18 stig. Stigahæst í liði Brasilíu var Gabriela Braga Guimaraes (Gabi) með 15 stig.

Ítalía hafði fyrir úrslitaleikinn mætt heimastúlkum frá Póllandi í undanúrslitum þar sem Ítalía hafði betur 3-0. Brasilía mætti hinsvegar Japan og þurftu þær að hafa töluvert meira fyrir sínum sigri en sá leikur endaði 3-2.

Ítalía er að sigra VNL annað árið í röð en árið 2024 mættu þær Japan í úrslitum þar sem Ítalía hafði betur 3-1. Þær Ítölsku voru að næla sér í gullverðlaun í VNL í þriðja skipti.