Ítalía, Pólland, Japan og Brasilía áfram í undanúrslit VNL

Ítalía, Pólland, Japan og Brasilía eru öll komin áfram í undanúrslit VNL en úrslitahelgin fer fram þessa dagana í Lodz í Póllandi.

8 liða úrslit hófust í gær á viðureign Ítalíu og Bandaríkjana þar sem Ítalía hafði betur 3-0 (25-22, 25-21, 28,26). Stigahæst í leiknum var Paola Egonu leikmaður Ítalíu með 20 stig.

Seinni leikur gærdagsins var viðureign Póllands og Kína en Pólland hafði þar betur 3-2 (1725, 2520, 1925, 2519, 1512). Stigahæstar í leiknum voru Magdalena Stysiak leikmaður Póllands og Wu Mengjie leikmaður Kína, báðar með 25 stig.

8 liða úrslit héldu svo áfram í dag þegar Japan og Tyrkland mættust í fyrri leik dagsins en þar hafði Japan betur 3-2 (2521, 1625, 2520, 2225, 159). Stigahæst í leiknum var Melissa Teresa Vargas leikmaður Tyrklands með 22 stig.

Seinni leikur dagsins og síðasti leikur 8 liða úrslita var svo viðureign Brasilíu og Þýskalands en þeim leik lauk með sigri Brasilíu 3-0 (2519, 2624, 2514) Stigahæst í leiknum var Rosamaria Montibeller leikmaður Brasilíu með 13 stig.

 

Undanúrslit fara svo fram 26. júlí en þar mætast Ítalía og Pólland og svo Brasilía og Japan